Innlent | mbl | 12.5.2026 | 9:50 Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin eru sagðar mjög alvarlegar. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að tvær hurðir hafi verið brotnar upp og miklar skemmdir unnar bæði á skrifstofuaðstöðu starfsfólks og í svínahúsum búsins. „Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar, með þeim afleiðingum að dýrin gengu laus um húsin og úti á túni við búið í slagviðri og myrkri. Afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin eru mjög alvarlegar. Tíu smágrísir drápust í ringulreiðinni sem skapaðist og t.a.m. þurfti að aflífa einn grís vegna kjálkabrots. Þá eru fjölmargar gyltur með áverka, meðal annars haltar og rispaðar, og eitt fósturlát hefur þegar orðið. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta. Ljóst er að verulega var brotið gegn smitvörnum búsins þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra fóru út fyrir húsakynni búsins,“ sem segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Eldur hjá Stjörnugrís Framið undir yfirskyni dýravelferðar Þar segir og að umfang og framkvæmd verknaðarins bendi til þess að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Af verksummerkjum megi þá ráða að innbrotið hafi verið framið undir yfirskyni dýravelferðar, þrátt fyrir að afleiðingar gjörðanna hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis hafa jafnframt verið upplýst um atvikið. Haft er eftir Geir Gunnari Geirssyni, forstjóra Stjörnugríss, í tilkynningunni að skelfileg sjón hafi blasað við starfsfólki þegar það kom til vinnu um morguninn. „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina. Starfsfólkið varð fyrir miklu áfalli við að sjá bæði vinnustað sinn og dýrin í þessu ástandi og var sent heim.“ Haft er eftir Geir að ekki sé aðeins um töluvert eignatjón að ræða heldur fyrst og fremst mjög alvarlegt mál fyrir dýrin sjálf. „Að ráðast inn að næturlagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veruleg áhrif á líðan þeirra og öryggi. Mjög alvarlegt er þegar ró raskast hjá gyltum með got. Spenagrísir eru afar viðkvæmir fyrstu dagana og ef þeir týna móður sinni eða lenda hjá rangri gyltu getur hún hafnað þeim. Þá fá þeir hvorki næga næringu né vernd og geta veikst eða drepist á skömmum tíma.“ Unnið að því að bæta aðbúnað Þá er haft eftir Geir að Stjörnugrís hafi um nokkurt skeið unnið að undirbúningi umfangsmikilla framkvæmda með það að markmiði að bæta aðbúnað enn frekar. Enn séu þó ákveðin mál hjá stjórnvöldum sem bíði úrlausnar áður en hægt verði að ráðast að fullu í þær framkvæmdir. „Við viljum jafnframt hvetja þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu. Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns. Ég tel að allir hljóti að fordæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Arsenal setti félagsmet á sunnudaginn Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Ungverskur barnaníðingur handtekinn á Tenerife Aðeins ellefta lið sögunnar Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Fylgjast vel með hantaveirunni Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Arsenal setti félagsmet á sunnudaginn Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Ungverskur barnaníðingur handtekinn á Tenerife Aðeins ellefta lið sögunnar Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Segir vopnahléið vera í öndunarvél Varar við verktöfum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Fylgjast vel með hantaveirunni Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið
This article describes a physical security breach, not a software vulnerability, where perpetrators broke into a pig farm ("Stjörnugríss") under the guise of animal welfare activism, causing significant property damage and animal harm. The attack vector involved forced entry through two doors, leading to the destruction of office facilities and pig pens, which resulted in the death of ten piglets and injuries to other animals. The incident has been reported to the police and relevant authorities for investigation.