- What: Instructure reports a breach of their Canvas learning platform
- Impact: Users' data may have been accessed by hackers
Stjórnendur Instructure, fyrirtækisins sem rekur námsumsjónarkerfið Canvas, segjast hafa tryggt að hakkarar sem brutust inn í kerfið dreifi ekki upplýsingum sem þeir komust yfir. Þetta segja stjórnendur Instructure í færslu þar sem þeir greina frá samkomulagi sem þeir komust að við hakkarana. Þeir segja að hakkararnir hafi skilað gögnum sem þeir komust yfir og sýnt fram á að þeir hafi eytt skjölum hjá sér. Jafnframt hafi hakkararnir heitið því að kúga ekki fé út úr viðskiptavinum Instructure. Ekki kemur fram í tilkynningu Instructure hvað fyrirtækið greiddi hökkurunum. Sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands sendi nemendum og kennurum tilkynningu í hádeginu þar sem hún greindi frá samkomulaginu. „Þó að aldrei sé hægt að útiloka alla áhættu í slíkum tilvikum benda fyrirliggjandi upplýsingar til þess að gögn í Canvas séu nú örugg. Nemendur og kennarar geta því haldið áfram að nota Canvas með hefðbundnum hætti.“ Instructure segir í yfirlýsingu sinni að það sé aldrei hægt að treysta netglæpamönnum fullkomlega en að í þessu tilfelli hafi fyrirtækið talið nauðsynlegt að grípa til allra tiltækra ráða.