Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum

  • What: Háskólans á Bifröst is trying to resolve internal disputes related to the use of the AI program Claude to assess the validity of academic articles.
  • Impact: The dispute involves a lack of trust among staff and administrators.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.2.2026 | 13:32 | Uppfært 13:48 Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum „Ég er núna bara í því að ræða við starfsmenn og kortleggja stöðuna, ef svo má segja, því fyrsta skrefið í öllum samskiptum er samtalið. Það er mikilvægt núna að fólk tali saman og horfist í augu í samtalinu,“ segir Ólína í samtali við mbl.is. Samsett mynd Ljósmynd/Aðsendmbl.is/Sigurður Bogi Dr. Ólína Kerjúlf Þorvarðardóttir, settur rektor Háskólans á Bifröst, segist binda vonir við að hægt verði að ná grunni fyrir nýrri sátt og nýju trausti innan veggja skólans. Eins og mbl hefur greint frá hafa staðið deilur innan skólans sem tengjast vantrauststillögu sem var lögð fram á hendur þremur stjórnendum skólans eftir að þrír starfsmenn hans voru kærðir til siðanefndar. Greint hefur verið frá því að stjórnendurnir hafi notað gervigreindarforritið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá akademískum starfsmönnum. Siðanefnd Háskólans á Bifröst taldi starfsmennina ekki hafa gerst brotlega við siðareglur. Margrét Jónsdóttir Njarðvík sagði síðar starfi sínu sem rektor skólans lausu. Hinir tveir stjórnendurnir sem um ræðir eru Guðrún Johnsen, deildarforseti viðskiptadeildar skólans, og Kasper Simo Kristensen rannsóknarstjóri skólans. Frétt af mbl.is Margrét segir af sér sem rektor Frétt af mbl.is Ólína tekur við sem settur rektor Rætt um átakamál á starfsmannafundi Ólína Þorvarðardóttir tók við sem settur rektor í kjölfar afsagnar Margrétar og segir Ólína í samtali við mbl.is hennar fyrsta verk hafa verið að halda starfsmannafund. Það hafi í raun verið óhjákvæmilegt. „Það eru stór tíðindi þegar rektor ákveður að víkja og fara úr skotlínunni. Það er áfall fyrir vinnustað þegar slíkt gerist og við héldum strax í framhaldinu starfsmannafund þar sem staðan var kynnt fyrir fólki og rætt var um þau átakamál sem verið hafa hér innanhúss. Fundurinn var aðallega líka til þess að hlusta á raddir starfsmanna og gefa fólki kost á því að tjá sig og hlusta eftir því hvernig fólki líði,“ segir Ólína. Hún bætir við að fundurinn hafi tekist vel. Væntumþykja starfsmanna fyrir vinnustaðnum hafi komið í ljós og nefnir hún sömuleiðis að fundurinn hafi gefið sér, sem og stjórnarformanni skólans, Ársæli Harðarsyni, tilefni til að ætla að hægt væri að ná sáttum innan veggja skólans. „Við erum náttúrulega menntastofnun fyrst og fremst. Við erum stofnun sem starfar eftir ríkum og mikilvægum grunngildum sem við viljum halda í heiðri. Við erum fræðimenn og ábyrgir aðilar og fyrirmyndir okkar nemenda þannig að við verðum að takast á við þetta hlutverk af tilhlýðilegri ábyrgð og skyldurækni gagnvart þessum háskóla sem við berum öll fyrir brjósti.“ Frétt af mbl.is Starfsmennirnir brutu ekki siðareglur Mikilvægt að fólk tali saman Í samtali við mbl.is sagði Hanna Kristín Skaftadóttir, formaður félags akademískra starfsmanna við skólann, að farið yrði yfir stöðu mála með Ólínu og Ársæli aftur eftir helgi. Ólína tekur undir að sá fundur sé á dagskrá og bætir við að einnig verði rætt við stjórn nemendafélagsins. „Ég er núna bara í því að ræða við starfsmenn og kortleggja stöðuna, ef svo má segja, því fyrsta skrefið í öllum samskiptum er samtalið. Það er mikilvægt núna að fólk tali saman og horfist í augu í samtalinu. Ég gef mér það sem forsendu að hér séu allir boðnir og búnir til þess að vinna að framtíð Háskólans á Bifröst og ná sáttum um þau deiluefni sem hér hafa risið hæst að undanförnu.“ Frétt af mbl.is Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar „Erum farin að feta okkur inn á farsælli brautir“ Ljóst er að vantrausttillaga á hendur Guðrúnar Johnsen og Kasper Simo Kristensen hefur ekki verið dregin til baka. Aðspurð segist Ólína vonast til að hægt verði að ná grunni fyrir nýrri sátt og nýju trausti í komandi samtölum. „Ég bara vona að okkur takist það. Það er nú það sem markmiðið er þessa dagana. Við erum farin að feta okkur inn á farsælli brautir en við rötuðum á þannig að ég vona að það muni leiða okkur á góðan áfangastað.“ Að lokum segist hún taka við starfi rektors full auðmýktar og full af góðum vilja. „Ég vona að það veganesti leiði til góðs og ég vona að það eigi við um alla aðra sem unna þessum vinnustað.“ Carrick ekki lengi að fá verðlaunin ÓL-keppendur búnir með 10.000 smokka Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum Dagur vann sig upp listann á ÓL Ragnar Þór fundar á Kýpur Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Ríkisfjármálaleg tímasprengja Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Hlutur þolenda verði réttur með bótum Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Bústaðurinn brann til kaldra kola Harður árekstur á Suðurlandsvegi Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Carrick ekki lengi að fá verðlaunin ÓL-keppendur búnir með 10.000 smokka Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum Dagur vann sig upp listann á ÓL Ragnar Þór fundar á Kýpur Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Ríkisfjármálaleg tímasprengja Valhöll verður afhent í sumar Ráðherrann sáttur við Urriðafoss í bið Þar sem enginn vill halda sín jól Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Bústaðurinn brann til kaldra kola Harður árekstur á Suðurlandsvegi Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum

Share this article