- What: A farm animal welfare incident at Stjörnugríss
- Impact: Animal welfare activists were involved in an incident at a pig farm
Innlent | mbl | 12.5.2026 | 15:21 | Uppfært 17:04 Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss fordæmir aðgerðir dýraverndunarsinna sem ollu miklu tjóni hjá fyrirtækinu og urðu valdir að dauða fjölda grísa í innbroti aðfaranótt gærdagsins. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er bara nýr veruleiki,“ segir Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss í samtali við mbl.is um innbrot og skemmdarverk dýraverndunarsinna í svínabú fyrirtækisins á Kjalarnesi aðfaranótt gærdagsins og bætir hann því við að staðan sé hörmuleg en fjöldi grísa drapst eftir að þeir, sem þarna voru á ferð, opnuðu stíur og skildu dyr eftir opnar með þeim afleiðingum að dýrin sluppu út. „Það lítur út fyrir að þetta sé gert í nafni dýraverndunar en það snerist aldeilis upp í andhverfu sína,“ heldur forstjórinn áfram og segir að nú muni það á næstu dögum og vikum koma í ljós hvernig dýrunum muni reiða af. „Tíminn verður að leiða það í ljós, það varð eitt fósturlát í viðbót hér í morgun. Við búumst við að þetta fari allt á besta veg en það verða einhver áföll,“ segir hann enn fremur. Frétt af mbl.is Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Spurður út í skilaboð frá innbrotsmönnum segir hann bréf með einhvers konar stefnuyfirlýsingu hafa verið skilið eftir á vettvangi. „Það byrjaði á afsökunarbeiðni vegna gjörningsins sem kemur nú illa heim og saman við það sem maður sá og það sem hefur verið eyðilagt hérna. Ég held að fólk viti bara ekkert hvað það er að gera. Það er ábyrgðarhlutur hjá pólitíkinni og hjá dýraverndunarsamtökum og öðrum, sem eru með einhverjar fréttir og lýsingar og hafa áhyggjur af málum, sem standast enga skoðun og engan raunveruleika,“ segir Geir. Gífuryrðum fylgir ábyrgð Hann segir ímyndunaraflið fjörugt hjá fólki um að hjá Stjörnugrís sé stundað dýraníð og annar hryllingur „en ég held að allir hljóti að sjá í gegnum svoleiðis þvætting, slíkt gengi aldrei upp á byggðu vestrænu bóli. Með þessari starfsemi er mesta eftirlit með allri búfjárrækt á Íslandi, hér á landi er gríðarlegt eftirlit og fagfólk í hverju horni. Því fylgir ábyrgð að hafa uppi gífuryrði og lýsa einhverjum atburðum þegar menn hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru að tala um, það er vatn á myllu misjafnra sem eru ekki alveg stöðugir,“ segir Geir. Spurður út í tjónið af innbrotinu segir hann að þegar hann hafi mætt til vinnu í gærmorgun hafi dýrin að hluta verið komin út og allt í rúst á búinu. Svo var allt brotið og bramlað á rannsóknarstofunni, skrifstofunni og fóðurstöðinni svo eignatjónið er eitthvað, en við erum ekki mikið að hugsa um það. Við erum aðallega að hugsa um hvernig dýrunum reiði af og hvernig vinnist úr þessu. Grísirnir voru allir komnir í einn haug og gylturnar úti um allt og nú tekur við vinna við að para grísi og gyltur saman aftur,“ lýsir forstjórinn enn fremur. Þá hafi fósturlát orðið hjá gyltum vegna látanna og djöfulgangsins í innbrotinu. Fordæmir framgöngu hlutaðeigandi „Hversu mörg verða þau í viðbót á næstu dögum? Það á eftir að koma í ljós og líka hvort dýrin missi mjólk eða hafni grísunum, það er svo margt sem á eftir að koma í ljós á næstu tveimur til þremur vikum. Þá sjáum við heildaráhrifin á reksturinn. „Ég fordæmi framgöngu þessa fólks og umræðuna sem hefur átt sér stað undanfarið sem er byggð á sandi,“ segir Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss að lokum eftir innbrot og skemmdarverk dýraverndunarsinna í fyrirtækið sem ollu dauða fjölda grísa í búinu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gott á Króknum en allir veitingastaðir fullbókaðir Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti og rangar sakargiftir Aðkoman vægast sagt ömurleg Myndskeið: Mögnuð sveitaballastemning Grindvíkinga ÍBV – Valur kl. 18, bein lýsing Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Varar við verktöfum Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Umræðan vekur ugg meðal lækna Varar við verktöfum Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Gott á Króknum en allir veitingastaðir fullbókaðir Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti og rangar sakargiftir Aðkoman vægast sagt ömurleg Myndskeið: Mögnuð sveitaballastemning Grindvíkinga ÍBV – Valur kl. 18, bein lýsing Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Varar við verktöfum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Umræðan vekur ugg meðal lækna Varar við verktöfum Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið