- What: Police stopped two drivers using snow tires
- Impact: Drivers without proper permits or under influence were stopped
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla stöðvaði tvo á nagladekkjum Ragnhildur Helgadóttir Tveir ökumenn á nagladekkjum voru stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Annar þeirra eingöngu fyrir akstur á slíkum dekkjum en hinn var jafnframt undir áhrifum og án ökuskírteinis. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Óheimilt hefur verið að aka á nagladekkjum frá 15. apríl. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti þó að hún myndi ekki byrja að sekta fólk fyrir það fyrr en seint í þeim mánuði. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Fjarðabyggð Oddvitar framboða í Fjarðabyggð mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fjórir listar eru í framboði. Fyrir 19 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Eurovision „Það eru öryggisverðir með 20 metra millibili og þetta er allt mjög dempað“ Mikill viðbúnaður er í miðborg Vínar vegna þátttöku Ísraels í Eurovision. Fyrri undankeppnin fer fram í kvöld. Hún hefst klukkan 19 og verður sýnd á RÚV 2. Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Suðurnesjabæ Oddvitar framboða í Suðurnesjabæ mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fjórir listar eru í framboði. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart þremur mönnum Kona hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Brotin beindust gegn þremur mönnum og dætrum tveggja. Konan birti falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu í apríl Fyrir 42 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Holland WHO segir ekki hættu á hanta-veiru faraldri Dagný Hulda Erlendsdóttir Síðustu 28 farþegar skemmtiferðaskipsins Hondiusar, þar sem farþegar smituðust af hantaveirunni, voru fluttir með sérstöku flugi til Hollands í dag. Skipinu er nú siglt til Hollands með hluta af áhöfn, lækni og hjúkrunarfræðing. Þar verður skipið og farangur sótthreinsað. Tedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, varar við því að fleiri tilfelli eigi eftir að greinast, en segir ekki hættu á að faraldur brjótist út. Skemmtiferðaskipið Hondius. Það greindist hanta-veira og þrír létust. AP / Manu Fernandez Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Mjög sérstakur litur á lambi Gimbur sem kom í heiminn í vor er afar sérstakt á litinn, og fékk nafnið Sérstök. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Boðaði lögreglu á bensínstöð og vildi vera vísað úr landi Albanskur maður hringdi í lögregluna fyrr í vikunni og bað hana um að vísa sér úr landi. Hann er staddur ólöglega í landinu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Jafnrétti Ísland áfram leiðandi í réttindum hinsegin fólks Ísland heldur þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA, samtaka yfir réttindi hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu fyrir árið 2026. Spánn færist úr fimmta sæti í það fyrsta. Ísland bætir tveimur prósentustigum við sig frá fyrra ári. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starmer óvinsæll og hefur alla embættistíðina átt á brattann að sækja Breskur stjórnmálaskýrandi segir það vera helsta styrk Keirs Starmers sem stendur að enginn hafi skorað hann á hólm í kjöri um leiðtogasætið. Óvinsældir hans megi að einhverju leyti rekja til þess að fólk viti ekki hver framtíðarsýn hans sé. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Brú yfir Djúpafjörð boðin út í næstu viku Vegagerðin ætlar að bjóða út 200 metra stálbogabrú, sem verður síðasti liður í vegbótum á sunnanverðum Vestfjörðum, í næstu viku. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Hart sótt að blaðamennsku og frjálsum, óháðum fjölmiðlum Tjáningar- og fjölmiðlafrelsi hefur minnkað töluvert á síðustu árum og valdhafar heimsins, hvort sem það eru stjórnvöld, stórfyrirtæki, auðkýfingar eða glæpaforingjar, leggja æ fleiri steina í götu óháðrar og vandaðrar blaðamennsku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Íbúum fækkar á Norðurlandi vestra Íbúum fækkaði um tuttugu og sjö á Norðurlandi vestra á fyrsta ársfjórðingi ársins 2026. Þetta er ekki áhyggjuefni að mati sveitarstjóra Skagafjarðar sem kallar þó eftir efnda á byggðastefnu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir „Ömurleg“ aðkoma á geymslusvæði Strandabyggðar Unnin hafa verið skemmdarverk á nær öllum bílum og öðrum farartækjum á geymslusvæði Strandabyggðar við Hnitbjörg. Átta til tíu bílar voru skemmdir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Íþróttafræðingur segir óvottaða kofann fagnaðarefni Íþrótta- og heilsufræðingur fagnar kofa sem börn í Vesturbænum byggðu og Reykjavíkurborg vill fjarlægja. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að börn fái að taka áhættur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur Mist Þormóðsdóttir Grönvold Árlegar viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur hefjast í lok maí. Í tilkynningu segir að lokanirnar fari fram á sumrin þar sem ekki er hægt að sinna viðhaldi utanhúss á veturna. Þá sé farið í viðgerðir á mannvirkjun, málun, múrvinnu og almennt viðhald sem ekki er hægt að framkvæma á opnunartíma. Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur í sumar: Sundhöll: 26. maí – 21. júní Árbæjarlaug: 8. – 15. júní Dalslaug: 1. – 7. júní Grafarvogslaug: 15. – 23. júní Vesturbæjarlaug: 23. júní – 30. júní Klébergslaug: 24. – 30. ágúst Laugardalslaug: 24. – 30. ágúst Fyrsta lokunin hefst 26. maí, þá verður Sundhöllinni lokað. Ljósmynd / Reykjavíkurborg Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist „Kunnugleg mynd af sjálfsblekkingu og bili milli skynjunar og raunveruleika“ Hljómsveitin Mukka sendir frá sér lagið So Close. Hljómsveitarmeðlimir segja það vera innsýn inn í það sem koma skal og gefa skýra mynd af því hvert Mukka stefna á næstu plötu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Gera ekki athugasemdir við úrsögn úr orkusáttmálanum Framkvæmdastjóri Samorku segir úrsögn Íslands úr orkusáttmálanum ECT ekki draga úr getu fyrirtækja til að fjárfesta á Íslandi. Dómstólar hér á landi og þeir sem Ísland á aðild að geti miðlað mögulegum deilumálum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Ef þú ert á Tene, þá ertu á Tene“ Grunnskólakennari segir ítrekaða fjarveru barna frá skólum óþægilega fyrir nemendur og kennara. Hún segir marga foreldra ekki taka skólaskyldu barna sinna nógu alvarlega. Nemendur í Garðabæ taka að meðaltali 18 frídaga á ári. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga 26 milljónir rúmmetrar af kviku undir Svartsengi Þorgils Jónsson Aflögun og landris heldur áfram við Svartsengi. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að landris nemi áfram um tveimur sentimetrum á mánuði. Landris og kvikusöfnun á svæðinu mælast með svipuðu sniði og síðustu vikur og samkvæmt líkanreikningum hafa tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí í fyrra. Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Guðmundur Bergkvist Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Hinn fullkomni víkingur Málfræðingurinn Haukur Þorgeirsson fjallar um forna ljóðlist í Víðsjá á Rás 1. Ímyndarsköpun skálda hins sigursæla Eiriks Jarls eru viðfangsefni þessa pistils. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Mun fleiri teknir fyrir að gera aðra út í vændi 160 vændiskaupamál hafa komið til rannsóknar lögreglu hérlendis frá 2020. Í fyrra voru ellefu grunaðir um að græða á vændi annarra, talsvert fleiri en árin á undan. Sviðsstjóri á ákærusviði telur þetta skýrast af auknu bolmagni í rannsóknum á vændi. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Rauðarok hjá Aldísi Fjólu Söngkonan Aldís Fjóla var að senda frá sér nýtt lag með Halldóri Sveinssyni. Hún sendi hlustendum Popplands kveðju beint úr sauðburði á Borgarfirði eystra. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Katrín Tinna til Danmerkur Gunnar Birgisson Íslenska landsliðskonan og ÍR-ingurinn Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við HH Elite í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Þetta kemur fram í færslu ÍR Handbolta á samfélagsmiðlum en þar er Katrínu þakkað fyrir vel unnin störf hjá ÍR hvar hún hefur leikið frá árinu 2024. Katrín er línumaður og einnig öflugur varnarmaður. HH Elite er staðsett í Horsens og endaði í 7. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og datt snemma út úr úrslitakeppninni. Katrín Tinna er öflugur línumaður RÚV / Mummi Lú Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkar mjög ósammála um framtíð Borgarlínu Skiptar skoðanir eru meðal flokka um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt kosningaprófi RÚV. Flestir flokkar styðja við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en skiptast í fylkingar um Borgarlínu og Suðurlandsbraut. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Instructure borgaði hökkurum fyrir að dreifa ekki gögnum úr Canvas Fyrirtækið sem rekur Canvas-kerfið borgaði hökkurum fyrir að dreifa ekki gögnum sem þeir komust yfir. Sviðsstjóri kennslusviðs HÍ segir að nemendur og starfsfólk geti haldið áfram að nota kerfið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Mesta verðbólga í þrjú ár Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólgan í Bandaríkjunum var 3,8 prósent í apríl og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Verðbólgan jókst um hálft prósentustig milli mánaða. Aukin verðbólga er ekki síst rekin til stríðsins við Íran og áhrifa þess á olíudreifingu frá Persaflóa. Vísitala orkuverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 17,9 prósent milli ára. Það er mesta hækkun allra undirflokka verðbólgunnar. Maður fyllir á tank flutningabíls í Texas í Bandaríkjunum. EPA / FAZRY ISMAIL Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Báðir leikirnir gegn Egyptum sýndir á RÚV Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í tveimur vináttuleikjum í vikunni. Leikið verður í Kaíró á morgun og laugardaginn. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grímsnes- og Grafningshreppur Stefna að byggingu 700 fermetra atvinnuhúsnæðis í Grímsnesi Fasteignaþróunarfélagið