Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lítil trú á plani Kristrúnar

Read Full Article →

Markaðsaðilar virðast hafa takmarkaða trú á að áform um hallalaus fjárlög á næsta ári, sem koma fram í fjármálaáætlun 2027-2031, muni ganga eftir. Þannig telja rúmlega 83% þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins frekar ólíklegt eða mjög ólíklegt að áformin muni ganga eftir. Einungis tæplega 10% þátttakenda telja mjög líklegt eða frekar líklegt að áformin gangi eftir. Könnunin var send á 287 markaðs- og greiningaraðila og bárust 114 svör sem jafngildir tæplega 40% svarhlutfalli. Markaðsaðilar hafa enn minni trú á að áætlun fjárlaga um 15 milljarða króna halla ríkissjóðs á þessu ári muni ganga eftir. Þannig telur tæplega 87% þátttakenda að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði aðeins eða mun verri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Á móti telur aðeins rúmlega 8% þátttakenda að afkoman verði aðeins betri en gert er ráð fyrir og enginn hefur trú á að afkoman verði mun betri. Takmarkað traust markaðsaðila í garð fjárhagsáætlana ríkisstjórnarinnar kom einnig skýrt fram í könnun Viðskiptablaðsins frá því í mars þar sem markaðsaðilar voru spurðir um frammistöðu Daða Más Kristóferssonar sem fjármálaráðherra. 72% þátttakenda töldu Daða Má hafa staðið sig mjög illa eða frekar illa sem fjármálaráðherra. Sjá einnig Öll vötn falla til óbreyttra vaxta Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article