Um þessar mundir er mikið að gera í fjárhúsum landsins. Lítið er um svefn hjá bændum á Hurðarbaki, enda skiptast hjónin Reynir Þór og Fanney á vöktum yfir fénu. „Sauðburður hefur gengið vel. Hér komu mörg lömb í nótt og heilmikið að gera.“ Tíðarfar er töluvert kaldara þetta vorið en á sama tíma í fyrra. Enn er mikill klaki í jörðu í Flóahreppi og því nokkuð tæpt að keyra haugsugurnar út á viðkvæm túnin. „Við bíðum eftir að það spretti einhver grös svo við getum komið fénu út og kýrnar bíða spenntar eftir því líka.“ Hjónin á Hurðarbaki reikna með þrjú hundruð lömbum í ár og einnig reka þau myndarlegt mjólkurbú. “Þetta er ótrúlega skemmtilegur tími og ég get ekki tekið neitt út fyrir sviga með það. Maður þarf í rauninni ekkert að sofa. Bara mikið kaffi og lítill svefn.“