Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur

  • What: Report on emergency response in Grindavík
  • Impact: Insights into disaster management
Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 10:23 Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Eldgos á Reykjanesskaga 16. mars 2024. mbl.is/Eyþór Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Grindavíkurúrræði að ljúka: 200 íbúðir á sölu » Fleiri tengdar fréttir Skýrsla starfshóps sérfræðinga um viðbrögð stjórnvalda vegna jarðhræringanna í Grindavík dregur upp mynd af almannavarnakerfi sem hefur á köflum glímt við óskýra ábyrgð, óformlegt verklag og skort á skriflegri stjórnsýslu á meðan fordæmalaust neyðarástand stóð yfir. Þótt hópurinn hrósi víða viðbragðsaðilum fyrir störf þeirra við gríðarlega erfiðar aðstæður er megintónn skýrslunnar sá að verkferlar, áhættumat og ábyrgðarkeðjur hafi oft verið óskýr eða illa skjalfest. Fyrir vikið hafi ákvarðanir oft ekki verið rekjanlegar eftir á. Eitt skýrasta stef skýrslunnar er að erfitt hafi reynst að rekja hver tók ákvarðanir, á hvaða forsendum þær voru byggðar og hver bæri ábyrgð á þeim. Víðir Reynisson var sviðsstjóri almannavarna á því tímabili sem skýrslan tekur til. Eggert Johannesson Engin gögn um ákvarðanir Starfshópurinn segir ítrekað að gögn hafi skort, að ákvarðanir hafi ekki verið nægilega skráðar og að skriflegar heimildir um mikilvægar ákvarðanir hafi oft ekki fundist. Skýrslan var unnin af Hafsteini Dan Kristjánssyni lagaprófessor, sem var formaður starfshópsins, Kjartani Þorkelssyni, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurlandi, og Sóleyju Kaldal áhættu- og öryggisverkfræðingi. Fóru inn á eigin ábyrgð Í skýrslunni er einnig gagnrýnt að skrifleg áhættumat hafi víða skort eða verið óaðgengileg. Hópurinn telur að ekki hafi verið fullnægjandi að byggja á almennum viðvörunum um að Grindavík væri hættuleg heldur hefði þurft formlegt, skriflegt áhættumat sem bæði stjórnvöld og þeir sem störfuðu á svæðinu hefðu aðgang að. Þá er bent á að fólk hafi í mörgum tilfellum farið inn á hættusvæði „á eigin ábyrgð“ án þess að hafa fullnægjandi upplýsingar um raunverulega áhættu. Björgunarsveitarfólk að störfum í Grindavík. mbl.is/Eyþór Veikleikar í upplýsingaflæði Skýrslan lýsir einnig veikleikum í upplýsingaflæði og stjórnun innan almannavarnakerfisins. Starfshópurinn segir að sums staðar hafi skort miðstýringu, yfirsýn og skráningu ákvarðana, auk þess sem samskipti milli lögreglu, almannavarnadeildar, samhæfingarstöðvar og annarra aðila hafi ekki alltaf verið skýr. Þá hafi verið erfitt fyrir starfshópinn að fá svör og gögn frá stjórnvöldum og í sumum tilvikum tekið marga mánuði að fá upplýsingar afhentar. Meta ekki refsiverða háttsemi Þrátt fyrir gagnrýnina leggur starfshópurinn áherslu á að markmið skýrslunnar sé fyrst og fremst að draga lærdóm af viðbrögðunum en ekki að meta refsiverða háttsemi einstakra starfsmanna eða stjórnvalda. Á það er bent að sakamál sé til rannsóknar vegna banaslyss í Hópshverfi 10. janúar 2024 og það hafi bundið hendur starfshópsins að hluta til. Niðurstaðan sé þó skýr: að styrkja þurfi stjórnsýslu almannavarna, skráningu ákvarðana, ábyrgðarkeðjur og formlegt áhættumat svo kerfið sé betur undirbúið fyrir sambærilegt neyðarástand í framtíðinni. Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Grindavíkurúrræði að ljúka: 200 íbúðir á sölu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur 310 milljóna hús og örlítið af skriðdrekaolíu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Verður ekki næsti knattspyrnustjóri United Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Viðræðum um Grænland miðar vel Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur 310 milljóna hús og örlítið af skriðdrekaolíu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Verður ekki næsti knattspyrnustjóri United Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umræðan vekur ugg meðal lækna Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg

Share this article