Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dagbjartur spilar um sæti á Opna bandaríska meistaramótinu

Read Full Article →

Dagbjartur Sigurbrandsson hefur tryggt sér þátttökurétt í lokaúrtökumótum Opna bandaríska meistaramótsins í golfi eftir góða frammistöðu í undankeppni í gær þar sem hann spilaði 18 holu hring á Berkshire Hills vellinum í Pittsfield í Bandaríkjunum á 70 höggum. Hann endaði því á tveimur höggum undir pari, einn þriggja kylfinga sem enduðu jafnir í öðru sæti. Aðeins fjórir efstu fengu áframhaldandi keppnisrétt á loka úrtökumóti Opna bandaríska risamótsins. Þessi mót verða spiluð 18. maí, 25. maí og 8. júní og þar munu kylfingarnir spila 36 holur á einum degi og berjast um síðustu lausu sætin á Opna bandaríska meistaramótið. Dagbjartur lék einnig á loka úrtökumótinu í fyrra og reynir því annað árið í röð að komast á Opna bandaríska meistaramótið, en það er eitt fjögurra risamóta á hverju ári hjá karlkylfingum. Hin eru Mastersmótið, Opna breska meistaramótið og PGA meistaramótið. Aðeins einn íslenskur karl hefur komist á risamót en það gerði Haraldur Franklín Magnús þegar hann keppti á Opna breska mótinu árið 2018. Í kvennaflokki eru fimm árleg risamót og þeim hafa Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir keppt.

Share this article