Innlent | Morgunblaðið | 13.5.2026 | 11:00 Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Útiloka samstarf við hvort annað Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann „Garðabær fyllilega sjálfbær fjárhagslega“ » Fleiri tengdar fréttir Oddvitar þeirra lista sem bjóða fram í Reykjanesbæ eru sammála um að bærinn hafi vaxið of hratt á undanförnum árum. Mikill vöxtur, uppbygging innviða, húsnæðismál, atvinnuþróun, málefni hælisleitenda og framtíð Þróunarfélagsins Kadeco reyndust meðal helstu umræðuefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Í kappræðurnar mættu Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkingu, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokk, Rúnar Fossadal Árnason fyrir Miðflokk og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Framsóknarflokk. Í dag samanstendur meirihlutinn í Reykjanesbæ af fulltrúum Samfylkingar, Framsóknarflokks og listaframboðsins Beinnar leiðar sem ekki býður fram að þessu sinni. Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokkinn, fulltrúar Morgunblaðsins, Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, þá Rúnar Fossadal Árnason fyrir Miðflokkinn og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. mbl.is/María „Innviðir haldi í við íbúafjölgun“ Í upphafi voru frambjóðendur spurðir hvort Reykjanesbær hefði stækkað of hratt. Allir svöruðu því játandi. Fram kom að íbúum bæjarins hefur fjölgað um 64% frá árinu 2014 og að um 35% íbúa eru af erlendum uppruna. Halldóra Fríða sagði Reykjanesbæ hafa unnið sig út úr erfiðri fjárhagsstöðu og að ráðist hefði verið í mikla innviðauppbyggingu. „Við höfum byggt fyrir 23 milljarða frá 2014. Og það höfum við framkvæmt fyrir eigið fé að 74% hluta, þannig að við höfum einungis tekið sex milljarða að láni,“ sagði hún. Hún sagði mikilvægt að missa ekki sjónar á verkefninu og tryggja að innviðir héldu í við íbúafjölgun. Nú væri bærinn farinn að taka inn 18 mánaða börn á leikskóla, en áfram þyrfti að horfa til næstu ára í leikskóla- og skólamálum. Arnar Páll sagði vöxtinn hafa haft mikil áhrif á innviði, ekki síst leikskólamál. Viðreisn vill koma á fót sérstöku leikskólaráði innan menntasviðs. „Við þurfum aðeins meira vægi þarna í þennan málaflokk,“ sagði hann og benti á að gert væri ráð fyrir um 15% fólksfjölgun í Reykjanesbæ á næstu tíu árum. Guðný Birna sagði sveitarfélagið hafa tekist á við margar áskoranir á kjörtímabilinu, þar á meðal náttúruhamfarir í Grindavík. Reykjanesbær hefði tekið á móti 1.100 Grindvíkingum, þar af 54 leikskólabörnum. „Við höfum líka á kjörtímabilinu byggt 301 nýtt leikskólapláss,“ sagði hún. Hún sagði einnig að Vinnumálastofnun hefði sett 1.300 manns umfram samninga á sveitarfélagið án samráðs, en sú tala væri nú komin niður í um 300. Frétt af mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskotið Vilja hægja á vextinum Vilhjálmur sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja breyta um kúrs í skipulagsmálum. Hann vill draga úr áherslu á fjölbýli og fjölga sérbýlislóðum. „Ef við stýrum þessu með skipulagsmálum, að hafa nægt framboð fyrir sérbýlislóðir og draga úr framboðinu fyrir fjölbýli, að þá hægjum við á vextinum,“ sagði hann. Rúnar tók undir að hægja þyrfti á uppbyggingu fjölbýlishúsa. Hann sagði æskilegt að vöxtur bæjarins yrði um 3% á ári. Hann sagði mikla fjölgun, uppbyggingu á Ásbrú og fjölgun hælisleitenda hafa skapað álag á innviði. „Við ætlum að byrja aðeins að þrengja að hælisleitendum að koma til landsins og í okkar bæ,“ sagði Rúnar. Vilhjálmur sagði innflytjendur sem kæmu til starfa ekki vera vandann, heldur þyrfti að setja ríkinu skýr mörk varðandi hælisleitendur. Öflugt íþrótta- og tómstundastarf væri lykilatriði í því að hrista bæjarbúa saman, nýja og þá sem fyrir eru. Frétt af mbl.is X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Deilt um Kadeco Frambjóðendur voru einnig spurðir um Kadeco, sem var stofnað eftir brotthvarf varnarliðsins árið 2006. Þar komu fram ólíkar áherslur. Halldóra Fríða sagði hlutverki félagsins við að koma húsnæði í not lokið og að taka þyrfti samtal um framtíð þess. „Það er svolítið erfitt að vera með ríki í ríkinu,“ sagði hún og benti á að tekjur af lóðum á svæðinu rynnu ekki með sanngjörnum hætti aftur til sveitarfélagsins. Rúnar sagði Miðflokkinn vilja taka yfir rekstur Kadeco og að ríkið skilaði lóðum til Reykjanesbæjar. Vilhjálmur sagði flækjustigið hamla fyrirtækjum sem vildu byggja upp á svæðinu. „Þau vita ekki hvort þau eru að tala við Kadeco, Isavia eða sveitarfélagið,“ sagði hann. Guðný Birna sagði málið flókið vegna margra landeigenda innan marka sveitarfélagsins, en samstarf við Kadeco væri í gangi, meðal annars um þróun Helguvíkur. Arnar Páll taldi tilvist félagsins enn réttlætanlega vegna umsvifa ríkisins á Ásbrú. Tækifæri í atvinnulífi Frambjóðendur voru sammála um að fjölbreyttara atvinnulíf væri mikilvægt. Rætt var um Helguvík, gagnaver, landeldi, hafnaruppbyggingu, nýsköpun og möguleika tengda Keflavíkurflugvelli. Guðný Birna sagði mörg hundruð störf vera í burðarliðnum og að mikilvægt væri að mennta íbúa sveitarfélagsins fyrir ný störf. Framhaldsskólinn væri að setja af stað gagnaversbraut og Háskóli Íslands kæmi inn í rekstur Keilis. Arnar Páll sagði mikilvægt að markaðssetja Reykjanesbæ betur og einfalda stjórnsýsluna gagnvart fyrirtækjum. „Við leggjum til eina snertingu innan stjórnsýslunnar og að þú hafir bara þinn tengilið þarna inni,“ sagði hann. Ólík afstaða til ESB Í umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sögðust Arnar Páll og Guðný Birna vilja sjá hvað kæmi út úr viðræðum áður en tekin væri endanleg afstaða til aðildar. Vilhjálmur, Rúnar og Halldóra Fríða sögðust hins vegar andvíg viðræðum. Halldóra sagði hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins. „Ég tel enga þörf á að kíkja í pakkann sjálf persónulega af því að við vitum alveg hvað er í þessum pakka,“ sagði hún. Í lokaorðum sínum lögðu frambjóðendur áherslu á ólíkar leiðir til að mæta verkefnum næsta kjörtímabils. Þar voru nefnd ábyrg fjármál, fjölskyldu- og menntamál, breytt húsnæðisstefna, lægri álögur, efling atvinnulífs, velferðarmál og aukið samráð við íbúa. Samtalið frá Reykjanesbæ er aðgenglegtí hljóði og mynd á mbl.is og Spotify . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Útiloka samstarf við hvort annað Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann „Garðabær fyllilega sjálfbær fjárhagslega“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina „Takk fyrir mig handbolti“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Flugmenn Icelandair neita að stökkva til X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina „Takk fyrir mig handbolti“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veikleiki í Innu: „Lítum málið mjög alvarlegum augum“ Umræðan vekur ugg meðal lækna Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er