Kristjana Pálsdóttir lögfræðingur hefur gengið inn í eigendahóp Pálsson Law og tekið við sem framkvæmdastjóri félagsins. Kristjana hóf störf hjá félaginu í júní 2025 og hefur frá þeim tíma komið að áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar. Kristjana býr yfir reynslu á sviði skattaréttar, félagaréttar og fyrirtækjaráðgjafar. Áður en hún gekk til liðs við Pálsson Law starfaði hún hjá Deloitte Legal við ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga á sviði skattamála og fyrirtækjalögfræði. Þar áður starfaði hún hjá Skattinum um árabil þar sem hún sinnti skatteftirliti og flóknum skattamálum fyrirtækja og einstaklinga í ólíkum atvinnugreinum. Þá hefur Kristjana einnig sinnt kennslu í skattarétti við Háskóli Íslands, í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala og í námi til viðurkennds bókara við Opna Háskólann. Hún lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Pálsson Law er lögfræði- og ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga, meðal annars á sviði skattaréttar, félagaréttar, fyrirtækjaráðgjafar, samningagerðar og fyrirtækjatengdra verkefna. „Það er mikill styrkur fyrir félagið að fá Kristjönu inn í eigendahópinn. Hún hefur sterkan faglegan bakgrunn, yfirgripsmikla reynslu og hefur þegar haft mikil áhrif á uppbyggingu og þróun félagsins frá því hún hóf störf hjá okkur,“ segir í tilkynningu frá Pálsson Law. „Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að taka þátt í uppbyggingu Pálsson Law frá því ég hóf störf hjá félaginu og ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi þróun þess sem eigandi og framkvæmdastjóri. Áhersla okkar verður áfram á að veita viðskiptavinum okkar faglega, persónulega og hagnýta ráðgjöf,“ segir Kristjana Pálsdóttir . Pálsson Law er systurfélag Pálsson. Félögin starfa náið saman og veita fyrirtækjum og einstaklingum heildstæða þjónustu á sviði lögfræði, skattamála, reikningshalds, endurskoðunar og fyrirtækjaráðgjafar.