Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair hættir rekstri Boeing 757 fyrr en áætlað var

Read Full Article →

Icelandair hefur tekið ákvörðun um að hætta rekstri á Boeing 757 vélum félagsins í áætlunarflugi fyrr en áður var áætlað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Fjórar Boeing 757 vélar eru nú í farþegaleiðakerfi félagsins og verða síðustu vélarnar teknar úr notkun fljótlega eftir næstu áramót, um ári fyrr en áður hafði verið áætlað. Fyrr hefur verið tilkynnt um að félagið hætti að nýta Boeing 767 breiðþoturnar í farþegaflugi í ársbyrjun 2027 en frá þeim tíma verður leiðakerfið eingöngu rekið með nýjustu kynslóð flugvéla. „Ákvörðunin er hluti af mótvægisaðgerðum sem félagið hefur gripið til vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði.“ Icelandair tilkynnti í síðustu viku um 5% samdrátt á flugframboði næsta haust og félagið segir að þessi ákvörðun muni einungis leiða til lítilsháttar samdráttar til viðbótar við það. „Félagið mun halda áfram flugi til allra áfangastaða, utan þess að flugi til Innsbruck verður hætt og hlé verður gert á flugi til Minneapolis á fyrsta ársfjórðungi 2027.“ Boeing 757 vélarnar hafa verið í notkun hjá Icelandair í yfir 30 ár. Í flota félagsins voru þær um 30 talsins þegar mest lét en frá árinu 2018 hefur vélunum fækkað jafnt og þétt. Við hafa tekið nýrri kynslóð flugvéla af gerðunum Boeing 737 MAX og Airbus A321LR sem Icelandair bendir á að séu talsvert sparneytnari, en þær nota allt að 30% minna eldsneyti á hvert sæti. „Boeing 757 vélarnar hafa verið burðarás í starfsemi Icelandair í yfir þrjá áratugi og þjónað félaginu og viðskiptavinum afar vel,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „Í ljósi yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum og snarpra verðhækkana á eldsneyti, höfum við gripið til ýmissa mótvægisaðgerða, svo sem áframhaldandi kostnaðaraðhalds, hækkunar fargjalda og að draga úr flugframboði. Flugvélarnar nota umtalsvert meira eldsneyti en nýrri flugvélar í flotanum og það vegur þungt í núverandi aðstæðum.“

Share this article