Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Franska lögreglan skaut mann til bana undir Sigurboganum

  • What: A man armed with a knife was shot and killed by police near the Arc de Triomphe in Paris.
  • Impact: A police officer sustained minor injuries from a stab wound.
Read Full Article →

Franska lögreglan skaut mann sem var vopnaður hnífi við Sigurbogann í París síðdegis í dag. Maðurinn lést stuttu eftir komuna á sjúkrahús. Fréttastofa AFP hefur eftir frönsku lögreglunni að maðurinn hafi hótað lögreglumönnum sem voru viðstaddir athöfn við Sigurbogann. Lögregla skaut manninn nokkrum sinnum. Lögreglumaður hlaut minniháttar áverka eftir hnífstungu. Hinn grunaði var franskur ríkisborgari og hafði áður komist í kast við lögin, árið 2012 var maðurinn dæmdur í sautján ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, hryðjuverk og önnur brot í Belgíu fyrir að ráðast á þrjá lögreglumenn,hryðjuverkadeild lögreglunnar í París rannsakar málið. EPA / Mohammed Badra

Share this article