Innlent | mbl | 14.5.2026 | 21:50 „Við erum bílaþjóð“ Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar í Reykjavík. mbl.is/María Matthíasóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar X26: Baráttusætin í Reykjavík Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Tekist á um þéttingarreit í Hafnarfirði Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi X26: Kópavogur – oddvitaslagur » Fleiri tengdar fréttir „50 prósent af fólki sem er á bíl í dag vill annan samgöngumáta þannig að við getum ekkert sagt að við séum bílaþjóð og fólk sé ekki tilbúið til þess að breyta til.“ Þetta sagði Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata í Reykjavík, í kappræðum Morgunblaðsins. Eins og við er að búast eru samgöngumál höfuðborgarsvæðisins á meðal helstu umræðuefna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og var hart tekist á um umræðuefnið í myndverinu í Hádegismóum. Ætti ekki að ganga á rétt einkabílsins Í kappræðunum voru oddvitarnir sem eru á móti Borgarlínunni í þeirri mynd sem hún er áformuð í spurðir hve sveigjanlegir þeir væru í andmælum sínum og var þar Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðan daginn, fyrstur til að grípa orðið og sagði flokkinn fylgjandi góðum almenningssamgöngum. Það þýddi þó ekki að ganga ætti á rétt einkabílsins. „Allir þessir bílar sem eru að koma munu koma að hluta til þrátt fyrir almenningssamgöngur. Það þýðir ekki bara að taka akbrautir af einkabílnum. Þetta á að vera viðbót fyrst og fremst. Það á að hanna þetta þannig að þetta verði viðbót.“ Ingimar Þór Friðrikksson, oddviti Góðan daginn. mbl.is/María Matthíasdóttir „Því er ég algjörlega mótfallinn“ Spurði þá oddviti Pírata, Kristinn Jón Ólafsson, hvort Ingimar myndi vilja taka af Laugardalnum meira svæði, þ.e. hin grænu svæði, og svaraði Ingimar að það væri þá t.d. ein leið. „Því er ég algjörlega mótfallinn,“ sagði Kristinn. Frétt af mbl.is X26: Tveir dagar til kosninga og hiti færist í leikinn Blandaði þá Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar, sér í umræðuna og sagði það óskiljanlegt hvernig meirihlutinn í borginni hefði talað fyrir því að gæta þyrfti grænu svæða borgarinnar á meðan meirihlutinn væri á sama tíma að rífa svæðin. „Auðvitað á að breikka þessa línu aðeins út Laugardalinn. Við erum fylgjandi því að það verði breytt í strætó og að þessir stærri strætisvagnar gangi bara eftir ekki miðjusettum akreinum heldur utansettum akreinum,“ sagði Sigfús. Sagði þá Kristinn slíkt fyrirkomulag ekki tryggja áreiðanleika, né öryggi eða aðgengi. Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins og Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata. mbl.is/María Matthíasdóttir „Hvað kostar rekstur einkabílsins?“ Tók þá Sigfús fyrir kostnað framkvæmdanna sem hann sagðist fullviss um að myndu rjúka fram úr áætlun og jafnvel enda í 600 milljörðum. „En hvað kostar rekstur einkabílsins? 15-20 prósent af heimilisbókhaldi fólks fer í rekstur er að fara í rekstur bíla,“ sagði Kristinn. „Við erum bílaþjóð. Fólk vill reka bílinn sinn,“ svaraði Sigfús áður en Kristinn tók aftur til orða: „50 prósent af fólki sem er á bíl í dag vill annan samgöngumáta þannig að við getum ekkert sagt að við séum bílaþjóð og fólk sé ekki tilbúið til þess að breyta til.“ Guðmundur Ingi Þórodsson, oddviti Flokks fólksins. mbl.is/María Matthíasdóttir „Mistekist að byggja upp traust almennings“ Blandaði þá Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, sé í umræðuna: „Þetta verkefni með Borgarlínu er auðvitað risastórt en þeim sem stjórna þessu verkefni hefur mistekist að byggja upp traust almennings á þessu verkefni. Það er alveg ljóst. Almenningur er á móti breytingum á Suðurlandsbraut eins og það er sett upp. Það held ég að sé alveg ljóst,“ sagði Guðmundur. „Við viljum breytingar á Suðurlandsbraut. Af hverju eru ekki útfærslur af Suðurlandsbraut t.d. í þessu verkefni?“ Í kappræðunum takast á Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar, og Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðan daginn. Kappræðunum stýra Andrea Sigurðardóttir og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir. Kappræðurnar má sjá í heild sinni hér að neðan. Frétt af mbl.is X26: Baráttusætin í Reykjavík Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar X26: Baráttusætin í Reykjavík Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Tekist á um þéttingarreit í Hafnarfirði Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi X26: Kópavogur – oddvitaslagur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið „Við erum bílaþjóð“ Haukakonur komnar á bragðið eftir sigur á Njarðvík Fékk að fara til Kína undir nýju nafni Fagnar fjörutíu árunum með stæl Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Föst í baksýnisspeglinum eða fram á veginn í átt að tækifærunum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Segir Kristrúnu fara með dylgjur Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið „Við erum bílaþjóð“ Haukakonur komnar á bragðið eftir sigur á Njarðvík Fékk að fara til Kína undir nýju nafni Fagnar fjörutíu árunum með stæl Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Föst í baksýnisspeglinum eða fram á veginn í átt að tækifærunum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaður fellur í grýttan jarðveg: „Illa lesið“ FÍA neitar því að standa í aðgerðum MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum