Sumir menn eru fæddir sigurvegarar – allt frá fyrsta degi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn slíkra manna. Ekki nóg með það, heldur er það mál manna að hann sé eitthvert mesta efni sem komið hefur fram á Íslandi þegar kemur að skemmtiskokki.Þannig var Guðmundur Ari hlutskarpastur í 3,25 kílómetra hlaupinu sem fór fram á Seltjarnarnesi á dögunum. Þar með skaut Guðmundur mönnum á borð við Magnús Kjartan, tíu ára, og að ógleymdum Leó Norfjörð, þriggja ára, ref fyrir rass, en þeir lentu í 2. og 3. sæti í hlaupinu.Að vonum fagnaði þingflokksformaðurinn þessum sigri með viðeigandi hætti á samfélagsmiðlum þar sem hann birti myndir af sér með gullmedalíuna eftirsóttu, sem allir þátttakendur í Neshlaupinu þrá svo heitt. Hrafnarnir eru spenntir yfir því að fylgjast með afrekum Guðmundar Ara á hlaupabrautinni á næstunni og hafa þeir fyrir víst að sérfræðingar á borð við Sigurbjörn Árna Arngrímsson telji líklegt að hann sé ansi líklegur til að tryggja sér gullið í Latabæjarhlaupinu sem fer fram á Menningarnótt í ágúst. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.