Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Merz hvetur börn sín til að halda sér frá Bandaríkjunum

Read Full Article →

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í dag að hann myndi ekki ráðleggja börnum sínum að búa eða stunda nám í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hann vísaði til breyttrar samfélagsumræðu og takmarkaðra tækifæra, jafnvel fyrir hámenntaða einstaklinga. Í ræðu á kaþólskri ráðstefnu í Würzburg sagði Merz að fólk væri of gjarnan í „hamfarahugsun“ þegar rætt er um ástand heimsins og hvatti Þjóðverja til að vera bjartsýnir á möguleika eigin lands. „Ég trúi því eindregið að fá lönd í heiminum bjóði upp á jafn mikil tækifæri, sérstaklega fyrir ungt fólk, eins og Þýskaland,“ sagði hann. „Ég myndi ekki mæla með því að börnin mín færu til Bandaríkjanna í dag, menntuðu sig og ynnu þar, einfaldlega vegna þess að þar hefur skyndilega þróast ákveðinn félagsandi (e. social climate),“ sagði hinn 70 ára gamli Merz, sem á þrjú börn. „Í dag eiga jafnvel best menntuðu einstaklingarnir í Bandaríkjunum mjög erfitt með að finna sér vinnu.“ Merz sagðist alltaf hafa dáðst að Bandaríkjunum en bætti við að álit hans á vinaþjóðinni hefði ekki batnað upp á síðkastið. Það vakti mikla athygli í síðasta mánuði þegar Merz sagði Bandaríkin væru að láta niðurlægja sig í stríðinu í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti var ekki sáttur við ummælin. Nokkrum dögum síðar tilkynnti ríkisstjórn Bandaríkjanna um að þau myndi kalla til baka hóp hermanna frá Þýskalandi og hækkuðu um svipað leyti tolla á bíla frá Evrópusambandinu.

Share this article