Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 7:10 Valdið færist til kjósenda Morgunblaðið/Karítas Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast » Fleiri tengdar fréttir Kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningar lauk í gærkvöld en í dag fara fram listakosningar í 50 sveitarfélögum og óhlutbundin kosning í sjö. Kjörstaðir verða alla jafna opnaðir klukkan níu og lýkur kjörfundi klukkan tíu í kvöld. Að venju náði kosningabaráttan hámarki í höfuðborginni í gær en í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is voru rekstur borgarinnar, samgöngur, skipulag og mögulegar meirihlutamyndanir í brennidepli. Staða flokkanna í könnunum setti mark sitt á umræðuna en þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn afgerandi forystu í Reykjavíkurborg. Samkvæmt síðustu könnun Gallup fyrir kosningar, sem gerð var fyrir Rúv., er Sjálfstæðisflokkurinn með 31% fylgi en Samfylking 22%, svo Vinstrið og Miðflokkur með 11% hvort, Viðreisn með 9% en Sósíalistaflokkur og Framsóknarflokkur með 5% hvor. Sjálfstæðismenn bjartsýnir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins sagði í kappræðunum, sem streymt var beint á mbl.is, að flokkur sinn hefði fleiri samstarfsmöguleika en oftast áður. Hún vísaði til mælinga um að kjósendur flestra annarra flokka vildu helst samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og sagði einu leiðina til breytinga í Reykjavík vera þá að flokkurinn yrði „burðarás í nýjum meirihluta“. Hart var deilt um fjármál borgarinnar en Hildur sagði rekstur borgarinnar ósjálfbæran og tölurnar fegraðar með bókhaldsbrellum. Fleiri tóku undir það að fjárreiður borgarinnar væru ekki burðugar en Pétur Marteinsson oddvitaframbjóðandi Samfylkingar sagði þær hreint ekki slæmar. Flókin meirihlutaskák Um mögulega meirihluta sýndist mönnum eitt og annað en Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokks sagði fyrra samstarf við Samfylkinguna hafa mistekist vegna ágreinings um lykilmál og útilokaði nýtt samstarf við flokkinn. Ari Edwald oddvitaframbjóðandi Miðflokks taldi samstarf við Samfylkingu einnig útilokað, nauðsynlegar breytingar væru ómögulegar með hana innanborðs. Hins vegar sagði Björg Magnúsdóttir oddvitaframbjóðandi Viðreisnar ýmsa möguleika á meirihlutum en að samstarf Viðreisnar við Miðflokkinn væri varla inni í myndinni. Hún neitaði því hins vegar að í þeim orðum fælist ávísun á meirihluta til vinstri. Kappræðan í gær er öllum opin á mbl.is, sem og aðrar kappræður, borgarafundir og oddvitaviðtöl Morgunblaðsins og mbl.is í 38 sveitarfélögum um land allt. Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu og Moggaappinu í dag á blaðsíðum 2,4,6,8 og 12. Frétt af mbl.is X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frumflutningur sérkenni kórsins Beint: Landsmenn ganga til kosninga Valdið færist til kjósenda Pistill: Milli kennisetninga og veruleika Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Þetta eru einkenni hantaveiru Spá allhvassri austanátt á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frumflutningur sérkenni kórsins Beint: Landsmenn ganga til kosninga Valdið færist til kjósenda Pistill: Milli kennisetninga og veruleika Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Ýmsir ágallar á verklagi Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum