Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gagnrýna breytingu áður botn fæst í kæru Ísfélagsins

Read Full Article →

„Stjórn Landssambands smábátaeigenda lýsir yfir miklum áhyggjum af því að enn hafi ekki verið tryggt með lagabreytingum að strandveiðar geti staðið í 48 daga, né heldur að nægjanlegt aflamagn verði tryggt svo ekki komi til stöðvunar veiða,“ segir í ályktun sem stjórn sambandsins hefur sent frá sér. Skoða lögmæti úthlutunar Bjarkeyjar á tvö þúsund tonnum „Ályktunin beinist einkum að þeirri staðreynd að Umboðsmaður Alþingis hefur tekið til skoðunar 2.000 tonna viðbót Bjarkeyjar Olsen fyrir tveimur árum. Þessi stjórnsýslukæra varð til þess að strandveiðisjómenn voru sendir í land í júlí í fyrra, og gæti orðið til þess að það sama gerist í ár,“ segir Kjartan Sveinsson formaður Landsambands smábátaeigenda. Stjórnvöld tryggi strandveiðum skýran lagalegan og efnislegan grundvöll Segir Kjartan að LS telji óásættanlegt að gripið sé til breytinga sem skerði aflamagn til strandveiða og línuívilnunar áður en niðurstaða liggi fyrir um lögmæti fyrri framkvæmdar. „Sambandið krefst þess að stjórnvöld bíði niðurstöðu málsins hjá Umboðsmanni Alþingis og tryggi jafnframt strandveiðum skýran lagalegan og efnislegan grundvöll,“ segir hann. Í ályktun stjórnar LS segir að fyrir liggi að svör atvinnuvegaráðherra og innviðaráðherra um aukningu afla bendi til þess að sú framkvæmd sem beitt hafir verið undanfarin ár kunni ekki að standast lög. Vilja afrit af samskiptum allra í kærumáli Ísfélagsins „Þá hefur komið fram að Ísfélagið í Vestmannaeyjum, eitt aðildarfélaga Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, hafi leitað til Umboðsmanns Alþingis vegna þessa máls. Í kjölfarið hefur Umboðsmaður Alþingis beint ítarlegum fyrirspurnum til atvinnuvegaráðuneytisins. LS hefur óskað eftir afritum af þeim bréfum og gögnum sem farið hafa milli ráðuneytisins og Umboðsmanns Alþingis, sem og samskiptum ráðuneytisins við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og aðildarfélög þeirra vegna málsins. Stjórn LS telur óásættanlegt að ráðist hafi verið í breytt vinnubrögð af hálfu ráðherra sem leiða til skerðingar á aflamagni til strandveiða og línuívilnunar, án þess að fyrir liggi niðurstaða um að fyrri framkvæmd hafi verið andstæð lögum. Slík málsmeðferð skapar óvissu, grefur undan trausti og bitnar með alvarlegum hætti á hagsmunum smábátaeigenda um land allt. Stjórn LS krefst þess að stjórnvöld tryggi þegar í stað strandveiðum þann lagalega og efnislega grundvöll sem nauðsynlegur er til að standa við gefin fyrirheit um 48 daga strandveiðitímabil og að tryggt verði nægjanlegt aflamagn til veiðanna,“ segir á ályktun Landssambands smábátaeigenda.

Share this article