- What: Analysis of automated accounts (gervimenni) linked to Viðreisnar influencing Icelandic political discourse.
- Impact: Social media platforms are being used to spread disinformation and influence public opinion.
Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 10:30 Fordæma iðju gervimenna Dæmi um jákvæðar athugasemdir við færslu Viðreisnar. Rökstuddur grunur er um að hér tjái sig gervimenni sem einn og sami aðilinn stendur á bak við og noti til þess gervigreind. Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Viðreisnarbottar“ valda usla Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími Forvitnaðist um greiðslu styrkja Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli » Fleiri tengdar fréttir Falskir notendareikningar virðast nota gervigreind til að trufla stjórnmálaumræðuna og ýmist verja eða lofsama Viðreisn. Viðreisn fordæmir uppátækið. Svo virðist sem gervimennum, sem tala máli Viðreisnar, sé beitt með skipulögðum hætti til að hafa áhrif á íslenska stjórnmálaumræðu á samfélagsmiðlum. Um er að ræða fjölda notendareikninga sem allt bendir til að séu óekta og gervimenni leggi orð í belg á spjallþráðum, iðulega með stuttum innleggjum sem bera þess merki að þar sé á ferðinni gervigreind sem semur og birtir innleggin sjálfkrafa. „Eins og skæðadrífa“ Meðal þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á þessum gervimennum er Facebook-síðan Ég segi nei við ESB en í viðtali við Morgunblaðið segir umsjónarmaður vefsíðunnar að í einu tilvikinu hafi athugasemdir gervimennanna komið eins og skæðadrífa við færslu og voru þær allar á sömu leið, til þess gerðar að verja ESB og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar. „Við nánari skoðun eru þessir reikningar flestir stofnaðir á tímabilinu frá nóvember til febrúar. Svo hefur þess verið gætt nýlega að bæta inn á síður þessara reikninga fjórum eða fimm færslum með myndum til að láta þá líta út fyrir að vera ekta,“ segir umsjónarmaðurinn sem reyndi að rannsaka uppruna notendareikninganna. Virðist sá sem stendur á bak við gervimennin hafa stolið myndum frá Íslendingum á Instagram, þar á meðal frá lokuðum notendareikningum, sem og úr myndasafni Morgunblaðsins. Það blasir ekki endilega alltaf við hvenær gervimenni eru á ferðinni en stundum má þó finna vísbendingar í textanum sem þau skrifa. „Þannig skrifaði eitt gervimennið, sem átti að vera kona: „Þegar hún talar, finnst mér ég öruggur,““ segir umsjónarmaður Ég segi nei við ESB . Silfá Huld Bjarmadóttir, fyrrverandi starfsmaður Vélfags á Akureyri, birti færslu á Facebook í gær þar sem hún tók saman aðfinnslur fjölda gervimenna við færslu þar sem Alfreð Tulinius stjórnarformaður Vélfags skaut föstum skotum á Viðreisn og Þorgerði Katrínu. Voru spjallmennin þar með alls kyns neikvæðni í garð frummælanda. Sömu spjallmenni virðast hafa birst á þræði Viðreisnar þar sem þau lofa flokkinn og prísa. Vilja að yfirvöld rannsaki málið Morgunblaðið hafði samband við Svanborgu Sigmarsdóttur framkvæmdastjóra Viðreisnar og segir hún flokkinn vita af gervimennunum og fordæma þessa iðju. „Umrædd gervimenni eru ekki tengd Viðreisn og flokkurinn hefur lagt sig fram um að leita skýringa á því hvaðan þau koma. Við tökum hættu á upplýsingaóreiðu mjög alvarlega og höfum óskað eftir því við þar til bær yfirvöld að þau kanni þetta nánar.“ Svanborg segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar og utanríkisráðherra, hafa varað sérstaklega við því að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB í haust yrði reynt að hafa áhrif á niðurstöðuna – meðal annars með því að beita gervimennum líkt og í þeim dæmum sem voru rakin hér að ofan. „Við vitum frá öðrum ríkjum að gervimenni eins og þessi eru nýtt til að skapa óreiðu. Markmiðið með slíkum gervimennum er að skapa sundrung í samfélaginu og ýta undir tortryggni,“ segir Svanborg. „Það er mjög mikilvægt að stjórnmálaflokkar, hagsmunasamtök og fjölmiðlar taki höndum saman til að upplýsa um hættuna á þessari upplýsingaóreiðu, til að Íslendingar verði meðvitaðir um að það séu ekki alltaf raunverulegir einstaklingar á bak við prófílmyndirnar sem þeir eiga í samskiptum við.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB „Viðreisnarbottar“ valda usla Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími Forvitnaðist um greiðslu styrkja Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vilja losna við markvörðinn í sumar Fordæma iðju gervimenna Nýliðarnir styrkja sig Dagurinn ólíkur öðrum kjördögum Hvetur unga kjósendur til að nýta kosningaréttinn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Þetta eru einkenni hantaveiru Dagurinn ólíkur öðrum kjördögum Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Vilja losna við markvörðinn í sumar Fordæma iðju gervimenna Nýliðarnir styrkja sig Dagurinn ólíkur öðrum kjördögum Hvetur unga kjósendur til að nýta kosningaréttinn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þetta eru einkenni hantaveiru Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum