Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki gabb þegar tilkynnt var um eld í Breiðholti

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekki gabb þegar til­kynnt var um eld í Breið­holti Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Mynd/Bjarni Rúnarsson Lögregla telur ekki að um gabb hafi verið að ræða þegar tilkynnt var um eld í ruslageymslu í Breiðholti í gær. Engan eld eða reyk var að sjá þegar slökkvilið mætti á staðinn. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að þegar viðbragðsaðilar mættu á staðinn hafi verið brunalykt en enginn reykur eða eldur. Slökkviliðið hafi metið það svo að engin hætta væri á ferð og afturkallað viðbragðið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 300 þúsund á kjör­skrá í sveit­ar­fé­lög­um lands­ins Landsmenn kjósa til sveitarstjórna í dag. Kjörstaðir opnuðu víðast hvar klukkan níu og verður lokað klukkan tíu í kvöld. Kosið verður í 62 sveitarfélögum. Í sjö sveitarfélögum er óbundin kosning, þar sem allir kjörgengir íbúar eru í framboði, og sjálfkjörið er í fjórum. Listakosning er í fimmtíu sveitarfélögum þar sem 3.156 frambjóðendur gefa kost á sér á 178 listum. 302.688 eru á kjörskrá. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leikhúsgagnrýni Inn­blást­ur: Skort­ir hvorki leik­gleði né hug­mynda­auðgi Látbragðsleikur er óalgengt listform hérlendis en í sýningunni Innblæstri í Tjarnarbíói bæta Jökull Smári og Nikulás í leiklistarflóruna með dans uppblásinna blaðra og látbragðsleik. Formið getur verið skemmtilegt og grimmt, segir Trausti Ólafsson. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Súld fyrir sunnan en sól­ríkt fyrir norðan á kjör­dag Von er á súld eða rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu í dag. Sólin leikur við íbúa Norðurlands. Lægð yfir Grænlandi hefur áhrif á veður og vinda. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Sungið með Sinfó á Skag­an­um Sinfóníuhljómsveit Íslands heimsótti Akranes í gærog hélt þar tvenna tónleika með úrvali söngvara af Vesturlandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Rúss­lands­for­seti heim­sæk­ir Kína­for­seta fast á hæla Banda­ríkja­for­seta Rússlandsforseti heimsækir Kínaforseta tvo daga í næstu viku fast á hæla Bandaríkjaforseta. Hernaðarsamvinna, viðskipti og alþjóðamál eru á dagskrá. Líklegt þykir að stríðið í Úkraínu beri á góma. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Taívan Ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið árétt­ar full­veldi og sjálf­stæði Utanríkisráðuneyti Taívan hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullveldi og sjálfstæði er ítrekað. Það gerðist skömmu eftir að Bandaríkjaforseti talaði gegn sjálfstæðisyfirlýsingu af hálfu Taívan. Hann hvatti ráðamenn þar og í Kína til stillingar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þjóð­veg­ur 66: „Senni­lega ekki til betra ferða­lag.“ Í ár verður hinn goðsagnakenndi þjóðvegur 66 í Bandaríkjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það má halda því fram að hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 kílómetra vegi sem liggur þvert yfir landið. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Hvað gera bik­ar­meist­ararn­ir? 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í fótbolta klárast í dag. Alls eru þrír leikir á dagskrá. Bikarmeistarar Breiðablik mæta Þrótti frá Reykjavík. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Hálf­fer­tug­ur karl­mað­ur látinn eftir árás há­karls Hákarl réðst á og drap karlmann undan vesturströnd Ástralíu í morgun. Þyrla var send manninum til bjargar. Slíkum árásum fer fjölgandi. Á þriðja hundrað hafa týnt lífi í atlögum hákarla nærri Ástralíu samkvæmt ítarlegri skrá. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Nígería Næst­æðsti leið­togi ISIS sagður felld­ur í þaul­skipu­lagðri aðgerð Næstæðsti leiðtogi hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki er sagður hafa verið veginn í Nígeríu, að fyrirskipun Bandaríkjaforseta. Hann segir flókna og þaulskipulega aðgerð hafa leitt til þess að foringinn fannst og var drepinn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvar og hvenær og hvern­ig skal nú kosið? Landsmenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa borgar-, bæja- og sveitastjórnir til næstu fjögurra ára. Alls er kosið í 62 sveitarfélögum, þar af 50 með listakosningu. Kjörstaðir verða yfirleitt opnaðir klukkan níu og þeim lokað klukkan tíu í kvöld. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vopna­hlé Ísra­els og Líban­ons fram­lengt um 45 daga Ísraelsmenn og Líbanir hafa komist að samkomulagi um að framlengja vopnahlé um 45 daga. Boðað hefur verið til nýrra viðræðna undir lok þessa mánaðar. Forsætisráðherra Líbanon kallar eftir alþjóðlegum stuðningi við áframhaldandi viðræður við Ísrael. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Banda­rísk­um her­mönn­um verður ekki fjölg­að í Pól­landi Bandaríkjamenn hafa hætt við að bæta 4 þúsund hermönnum við herafla landsins í Póllandi. Sitjandi herráðsforingi segir það skynsamlegt í stöðunni án þess að rökstyðja málið frekar. Stutt er síðan Bandaríkin ákváðu að fækka hermönnum í Þýskalandi. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Trump and­víg­ur því að Taívan lýsi yfir sjálf­stæði Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Kína og Taívan til að slaka á og kveðst alls ekki styðja sjálfstæðishugmyndir þeirra síðarnefndu. Hann hafi engan áhuga á að senda herlið þúsundir kílómetra. Hann hefði rætt málið við Kínaforseta. 16. maí 2026 kl. 0:51ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Minnst sjö drepn­ir í loft­árás Ísra­els­hers Markús Þ. Þórhallsson Hús stendur í ljósum logum eftir árás Ísraelshers. EPA / MOHAMMED SABER Að minnsta kosti sjö Palestínumenn voru drepnir í loftárás Ísraelshers á Gaza í kvöld, þar á meðal minnst eitt barn, samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda. Ísraelsmenn segja skotmarkið hafa verið Izz al-Din al-Haddad, leiðtogi hernaðarvængs Hamas. Stjórnvöld gruna hann um að vera einn höfuðpaura hryðjuverkaárásarinnar á Ísrael 7. október 2023. Ekki liggur fyrir hvort al-Haddad var drepinn í árásinni. 15. maí 2026 kl. 23:56INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur mælist stærst­ur í nýrri könnun Mask­ínu Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu sem birtist í kvöld. Samfylkingin kemur næst, þá Vinstrið, Viðreisn og Miðflokkur. Framsókn og Sósíalistar næðu einnig inn manni en aðrir flokkar ekki. Meirihlutinn væri fallinn. 15. maí 2026 kl. 23:12INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Áhorf­end­um fannst Hildur standa sig lang­best í kapp­ræð­un­um Hildur Björnsdóttir hlaut langflest atkvæði áhorfenda á RÚV-Stjörnur í oddvitakappræðum fyrir borgarstjórnarkosningarnar í kvöld. 15. maí 2026 kl. 21:19INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hvorki eldur né reykur þegar slökkvi­lið mætti Slökkvilið var kallað út með miklum viðbúnaði vegna tilkynningar um eld í ruslageymslu í Breiðholti seint í kvöld. Þegar slökkviliðsmenn mættu fyrir utan fjölbýlishúsið reyndist þó hvorki vera reykur né eldur og var útkallið afturkallað. 15. maí 2026 kl. 21:18ÍÞRÓTTIR Fótbolti Villa vann Liver­pool og stal sætinu Jóhann Páll Ástvaldsson John McGinn fagnar marki sínu í kvöld. IMAGO Aston Villa vann Liverpool 4-2 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Fyrir leik var Villa í 5. sæti og Liverpool í því fjórða en Villa skaust upp fyrir liðið með sigrinum. Villa er nú með 62 stig í 4. sætinu og Liverpool með 59 í því fimmta. Morgan Rogers kom Villa yfir á 42. mínútu. Virgil van Dijk jafnaði svo metin fyrir Liverpool á 52. mínútu. Ollie Watkins kom heimamönnum svo aftur yfir skömmu síðar, á 57. mínútu. Hann gerði svo út um leikinn með öðrum marki sínu á 73. mínútu. John McGinn skoraði fjórða mark Villa undir lok venjulegs leiktíma en van Dijk skoraði sárabótarmark í uppbótartíma. 15. maí 2026 kl. 21:08ÍÞRÓTTIR Körfubolti Tinda­stóll slökkti í tit­ildraumi Grind­vík­inga um stund Tindastóll minnkaði muninn í úrslitaeinvíginu gegn Grindavík um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir 89-94 sigur. Staðan í einvíginu er nú 2-1 og geta Grindvíkingar lyft titlinum á Sauðárkróki í næsta leik á mánudaginn kemur. 15. maí 2026 kl. 19:41ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Óljóst hverju var áorkað með heim­sókn Trumps til Kína Óljóst er hverju var áorkað með heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína sem lauk í dag. Forsetarnir funduðu um mikilvæg málefni og sögðust báðir hæstánægðir með heimsóknina. 15. maí 2026 kl. 19:09INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vit­arn­ir í borg­inni tókust á Oddvitar allra ellefu framboðanna í Reykjavík mættust í kappræðum í sjónvarpssal í kvöld. Þar fengu þeir síðasta tækifærið til að sannfæra borgarbúa fyrir sveitarstjórnarkosningar á laugardag. SAMANTEKT 15. maí 2026 kl. 18:48INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­kapp­ræð­ur: Hver stend­ur sig best? Þeir sem horfa á oddvitakappræðurnar á RÚV geta valið þá sem standa sig best í RÚV-stjörnur appinu. Sigurvegarar í RÚV-stjörnukeppninni fyrir síðustu alþingiskosningar mynduðu ríkisstjórn. 15. maí 2026 kl. 18:18ERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Kyn­ferð­is­legt of­beldi að aukast í vopn­uð­um átökum Kynferðislegu ofbeldi og pyndingum er beitt í auknum mæli sem vopni í stríðsátökum í heiminum. Amnesty International segja mikilvægt að draga gerendur til ábyrgðar. 15. maí 2026 kl. 18:16ERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Fær­ey­ing­ar afnema virð­is­auka­skatt af elds­neyti Guðmundur Atli Hlynsson Tillaga um að fella niður virðisaukaskatt af bensíni og dísilolíu var samþykkt við þriðju umræðu á færeyska lögþinginu í dag. Á vef færeyska ríkissjónvarpsins, Kringvarpsins, segir að lögin taki væntanlega gildi á morgun. Lögin um afnám virðisaukaskatts af eldsneyti í Færeyjum gilda til 31. júlí. Kringvarpið hefur eftir Akseli V. Johannesen, fjármálaráðherra Færeyja, að heimastjórnin muni þá meta stöðuna. Þórshöfn er höfuðborg Færeyja. KVF Hér á Íslandi hefur virðisaukaskattur á eldsneyti verið lækkaður úr 24% í 11% til að bregðast við verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Lækkunin gildir til 31. ágúst. 15. maí 2026 kl. 18:16INNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Bottar notuðu mynd af venju­leg­um út­hverfa­pabba – „Mjög scary“ Ge

Share this article