Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sveitarstjóri leiðir framboð D-listans í Rangárþingi eystra

Read Full Article →

Sjálfstæðisfélagið Kári hefur samþykkt framboðslista í Rangárþingi eystra. Framboðið verður undir merkjum D-listans og annarra lýðræðissinna, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, skipar efsta sæti listans. Á eftir honum er Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir bóndi í öðru sæti og Andri Már Óskarsson húsasmíðameistari er í því þriðja. Hulda Dóra Eysteinsdóttir, sjálfstætt starfandi hrossaræktandi, skipar fjórða sæti listans og Helgi Valur Smárason, stuðningsfulltrúi og fótboltaþjálfari, það fimmta. Hluti þeirra sem bjóða sig fram undir merkjum D-listans í Rangárþingi eystra.Aðsend / Sjálfstæðisfélagið Kári

Share this article