Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hróksfórnir á æsispennandi móti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 14:50 Hróksfórnir á æsispennandi móti Hilmir Freyr Heimisson, nýr Íslandmeistari í skák. Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Mótið var spennandi frá upphafi og eftir fyrstu 5 umferðirnar taldi ég mig eiga góða möguleika á því að ná langt,“ segir Hilmir Freyr Heimisson, nýr Íslandsmeistari í skák. Hann var einn 10 keppenda á Íslandsmótinu í skák, sem lauk síðastliðinn laugardag. Þar kepptu efnilegustu skákkappar landsins; ungir menn sem hafa helgað líf sitt skákinni og stefna hátt. Með 8 vinninga af 9 Mótið þótti frá upphafi vera æsispennandi og snjallir leikir þar áberandi. Þarna átti Hilmir Freyr góða spretti, svo sem í lokaumferðinni þegar hann lagði Bárð Örn Birkisson að velli eftir að hafa verið í veikari stöðu lengst af. Niðurstaðan varð sú að Hilmir Freyr lauk mótinu með 8 vinningum af 9 mögulegum, sem getur verið besta skorhlutfall þessarar aldar. Annar í röðinni á mótinu var Vignir Vatnar Stefánsson sem kom annar í mark með 7,5 vinninga, sem undir flestum kringumstæðum hefði dugað til að vinna Íslandsmeistaratitil. Í 3. sæti varð Hannes Hlífar Stefánsson með 6,5 vinninga. „Ég tók bara eina skák í einu og hafði fókusinn skýran. Í svona aðstæðum skiptir miklu að vera vel einbeittur. Á stórmótum sem standa í nokkra daga skiptir líka miklu máli að fá nægan svefn og vera almennt talað í góðu formi á alla lund,“ segir Hilmir um mótið sem hófst 1. maí og stóð yfir í níu daga. Ein skák á dag og allir kepptu við alla. Hilmir var kornungur þegar faðir hans, Heimir Guðjónsson, margfaldur Íslandsmeistari í knattspyrnu sem leikmaður og þjálfari, kenndi honum mannganginn og helstu brögðin í skákinni. Einnig leiðbeindi honum Tómas Rasmus, kennari í Salaskóla í Kópavogi. Fram eftir unglingsárum æfði Hilmir bæði fótbolta og skák en sneri sér síðan alfarið að taflmennsku. Og þarf ekki að sjá eftir því; svo vel hefur gengið. Ég pressaði Dag „Það gerðist margt skemmtilegt á Íslandsmótinu,“ segir Hilmir Freyr. „Upp úr stendur skák í 7. umferð þar sem ég tefldi við Dag Ragnarsson. Ég pressaði hann lengi í skákinni en svo komu tvær skemmtilegar hróksfórnir í röð. Þar náði ég að máta Dag, sem ég hef teflt við lengi. Og raunar alla þessa stráka sem voru á Íslandsmótinu. Ég var sjö ára og Vignir Vatnar fimm ára þegar við tefldum fyrst saman og síðan eru liðin 18 ár.“ Hilmir Freyr er frá 2022 handhafi alþjóðlegs meistaratitils í skák. Þar kom til þátttaka með góðum árangri á þremur alþjóðlegum mótum og 2.400 stig til meistaratitils. Næsti áfangi Hilmis ætti svo að vera stórmeistarinn. Þá þarf þátttöku á þremur mótum í þeirra flokki, þrjá stórmeistaraáfanga og samanlagt 2.500 stig. Svo langt ná menn þó ekki nema lifa og hrærast í skákinni og hjá Hilmi Frey fer mikill tími í alls konar æfingar og pælingar. Sem alþjóðlegur meistari nýtur hann starfslauna frá ríkinu, til að geta sinnt íþrótt sinni, en auk þess er hann þjálfari í skák hjá íþróttafélaginu Haukum í Hafnarfirði. „Margir iðkenda hjá Haukum eru komnir nokkuð á veg svo á æfingum er hægt að kenna skemmtilegar fléttur og skeinuhætta leiki. Krakkarnir eru fljótir að tileinka sér þá og af því ræð ég að framtíðin í skákinni sé björt,“ segir viðmælandi. Keppt í Krónborg Hilmir Freyr er nú kominn út til Danmerkur. Hann verður þar næstu daga á Kronborg Chess Open 2026 ; móti sem er þekkt í skákheiminum og er nú haldið í 53 sinn. Keppnisstaður er Helsingör sem er nokkuð fyrir norðan Kaupmannahöfn. Keppendur þar eru alls um 200 og koma frá flestum Norðurlandanna, Belgíu og Kína svo nokkur lönd séu nefnd. Þetta er stærsta alþjóðlega skákmótið sem haldið er í Danaveldi og á seinni árum hefur því verið sköpuð sú umgjörð að meiri eftirtekt njóti, að því er fram kemur á heimasíðu þessa viðburðar. Fyrsta umferð mótsins er í dag. Lokaskákir verða tefldar á sunnudaginn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hróksfórnir á æsispennandi móti Chelsea – Man. City staðan er 0:0 Hinsegin fáninn ekki áróður að mati yfirkjörstjórnar Freyr og lærisveinar hans með þriðja sigurinn í röð Kjörstaðir vel sóttir: Nær tvöfaldast í Hafnarfirði Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ógildir íbúakosningu vegna verulegs ágalla Skora á bæjaryfirvöld Þetta eru einkenni hantaveiru Kjörsókn eykst: „Eins og smurð vél“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Staðan mun verri en undanfarin ár „Það er enginn með hnífasett í bakinu“ Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Hróksfórnir á æsispennandi móti Chelsea – Man. City staðan er 0:0 Hinsegin fáninn ekki áróður að mati yfirkjörstjórnar Freyr og lærisveinar hans með þriðja sigurinn í röð Kjörstaðir vel sóttir: Nær tvöfaldast í Hafnarfirði Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aldrei heyrt frá Pétri hverju hann vilji breyta Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Ógildir íbúakosningu vegna verulegs ágalla Kjörsókn eykst: „Eins og smurð vél“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Staðan mun verri en undanfarin ár „Það er enginn með hnífasett í bakinu“ Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum

Share this article