Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð skuli kjósa

Read Full Article →

Kjörsókn hefur verið með meira móti um allt land en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Kjósendur sem fréttastofa hitti í dag voru flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð yrði fyrir valinu. Þó voru einhverjir sem tóku ákvörðun í kjörklefanum. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu í morgun á höfuðborgarsvæðinu og verða opnir fram til tíu í kvöld. Oddvitar flokkanna í borginni tóku daginn snemma til að kjósa. Samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í gær er útlit fyrir breytta mynd af landslagi borgarstjórnar í Reykjavík - og ljóst að hvert atkvæði getur haft mikið að segja til um í hvaða átt myndun meirihluta verður háttað. Kjörsókn á höfuðborgarsvæðinu hefur heilt yfir verið með betra móti en fyrir fjórum árum og var mikið um að vera á kjörstöðum þegar fréttastofu bar að garði. Kjörsókn hefur verið með meira móti um allt land en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Kjósendur sem fréttastofa hitti í dag voru flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð yrði fyrir valinu. Þó voru einhverjir sem tóku ákvörðun í kjörklefanum.

Share this article