Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hugsar sinn gang: „Dómurinn er fallinn“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.5.2026 | 0:33 Hugsar sinn gang: „Dómurinn er fallinn“ Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og varaformaður flokksins. mbl.is/Anton Brink Tinna Björt Jónsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Stefnir í fall meirihlutans í Mosfellsbæ Orri sækist eftir bæjarstjórastólnum Á-listinn sigraði í Þingeyjarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur Sjálfstæðisflokkur með 8 af 11 í Garðabæ » Fleiri tengdar fréttir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og varaformaður flokksins, segir fyrstu tölur úr Hafnarfirði vera mikil vonbrigði. Um 37% atkvæða hafa verið talin í Hafnarfirði og segir Guðmundur Árni tölurnar tala sínu máli. „Þetta eru mikil vonbrigði og tölurnar tala sínu máli. Dómurinn er fallinn og Hafnfirðingar hafa valið þessa leið,“ segir Guðmundur Árni í samtali við mbl.is á kosningavöku Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Hann segir augljóst að hægri sveifla sé í Hafnarfirði. „Framsóknarflokkurinn vinnur auðvitað stórsigur og Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu að miklu leyti. Við töpum verulega. Við unnum glæsilegan sigur í síðustu kosningum, bættum við okkur tveimur mönnum, en töpum aftur núna og það eru mikil vonbrigði.“ Frétt af mbl.is Meirihlutinn heldur í Hafnarfirði Tekur tapið á sig Guðmundur Árni segir niðurstöðuna vera persónulegt áfall fyrir sig sem oddvita listans. „Ég tek það tap á mig persónulega. Ég er ótvíræður oddviti þessa lista og lagði upp kosningabaráttuna. Ég lít á þetta sem mitt tap frekar en tap flokksins og okkar jafnaðarmanna í Hafnarfirði,“ segir hann. Hann minnir þó á að jafnaðarmenn eigi sterkar rætur í bænum. „Við höfum ævinlega haft sterkar rætur í Hafnarfirði og eigum þær enn og munum eiga þær áfram. Hafnarfjörður er kratabæli en kannski var eftirspurnin eftir mér persónulega ekki lengur til staðar og þá horfist ég í augu við það.“ Guðmundur Árni segir að hann muni nú hugsa sinn gang. „Ég á von á því að ný kynslóð jafnaðarmanna taki við kyndlinum í Hafnarfirði á komandi árum.“ Frétt af mbl.is Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr „Það styttist í mínum tíma“ Spurður hvort niðurstaðan í Hafnarfirði fái hann til að íhuga stöðu sína sem varaformaður Samfylkingarinnar segir Guðmundur Árni að hann vilji fyrst og fremst horfa til stöðunnar í Hafnarfirði. „Ég hætti í pólitík í 16 ár og kom aftur fyrir fjórum árum. Þá leiddi ég jafnaðarmenn hér í Hafnarfirði og við unnum góðan sigur. Í kjölfarið var ég kjörinn til forystu í Samfylkingunni á landsvísu og hef unnið þar af heilindum og miklum ákafa,“ segir hann. Hann segir þó ljóst að tími sinn í pólitík sé að styttast. „Ég er að hugsa minn gang hér í Hafnarfirði og vil rétta keflið áfram til komandi kynslóðar. Ég er sjötugur og þá á það sama auðvitað við um flokkinn á landsvísu. Það kemur allt á daginn. Við tökum engar stórar ákvarðanir í augnablikinu en það er augljóst að það styttist í mínum tíma þegar kemur að beinni þátttöku í pólitík. Það er bara einfaldlega þannig.“ Ekki heyrt í formanninum Guðmundur Árni segist ekki hafa rætt við formann Samfylkingarinnar eftir að fyrstu tölur bárust. „Nei, það eru nokkrar mínútur síðan ég fékk þessar fyrstu tölur. Ég hef ekki heyrt í formanninum en við tölum auðvitað saman í nótt og næstu daga,“ segir hann. Hann vill ekki draga of stórar ályktanir um stöðu Samfylkingarinnar á landsvísu út frá fyrstu tölum í Hafnarfirði. „Það á eftir að koma á daginn. Við erum auðvitað í góðum málum víða um land, sem er fagnaðarefni, og annars staðar niðri eins og gengur. Sums staðar, eins og í Kópavogi, erum við að bæta verulega við okkur og Samfylkingin er með ný framboð mjög víða.“ Guðmundur Árni segir Samfylkinguna ekki aðeins standa sterkt á landsvísu heldur einnig vera að sækja fram í sveitarfélögum þar sem flokkurinn hafi áður ekki verið í sterkri stöðu. „Samfylkingin er komin til að vera, ekki bara á landsvísu þar sem hún stjórnar landinu, heldur líka í sveitarfélögum þar sem við höfum bætt verulega við okkur.“ Frétt af mbl.is Guðmundur Árni: „Við uppskerum eins og við sáum“ „Þetta er högg“ Hann segir vonbrigðin þó fyrst og fremst snúa að Hafnarfirði. „Í augnablikinu eru mín vonbrigði bundin við Hafnarfjörð fyrst og síðast og þar er ljóst að það er hægrisveifla. Nóttin er ung og við eigum eftir að sjá hvað gerist í öðrum sveitarfélögum en þetta er áhyggjuefni,“ segir Guðmundur Árni og bætir við að lokum: „Hafnarfjörður hefur verið kratabæli og þungamiðja í starfi flokksins og þetta er högg. En vonandi sjáum við betri tölur þegar líður á nóttina.“ Frétt af mbl.is Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Stefnir í fall meirihlutans í Mosfellsbæ Orri sækist eftir bæjarstjórastólnum Á-listinn sigraði í Þingeyjarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur Sjálfstæðisflokkur með 8 af 11 í Garðabæ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur „Við vorum að búast við aukningu“ Stefnir í fall meirihlutans í Mosfellsbæ Orri sækist eftir bæjarstjórastólnum Á-listinn sigraði í Þingeyjarsveit Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Vann 130 milljónir X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Á kjörstað og svo beint upp á flugvöll Mest lesið Í gær Í vikunni Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Þórdís Kolbrún: „Betra en ég þorði að vona“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndir: Guðrún mætt á Austurvöll Vann 130 milljónir Tölur annars staðar slá Heiðu ekki út af laginu Beint: Kosningavöllur – farið yfir tölurnar „Það er ákveðin hægri sveifla“ Bæjarstjórinn fyrrverandi fékk nærri 70% kosningu Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Greiddi sama flugið tvisvar Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Vann 130 milljónir „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Nýjast á mbl.is » Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur „Við vorum að búast við aukningu“ Stefnir í fall meirihlutans í Mosfellsbæ Orri sækist eftir bæjarstjórastólnum Á-listinn sigraði í Þingeyjarsveit Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vann 130 milljónir Staðan mun verri en undanfarin ár X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað „Ég viðurkenni alveg að taugarnar eru þandar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Þórdís Kolbrún: „Betra en ég þorði að vona“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndir: Guðrún mætt á Austurvöll Vann 130 milljónir Tölur annars staðar slá Heiðu ekki út af laginu Beint: Kosningavöllur – farið yfir tölurnar „Það er ákveðin hægri sveifla“ Bæjarstjórinn fyrrverandi fékk nærri 70% kosningu Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Greiddi sama flugið tvisvar Beint: Meirihlutar falla í fyrstu tölum Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Vann 130 milljónir „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur

Share this article