Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæglætis veður í dag og á morgun Ragnar Jón Hrólfsson Hæglætis veður verður víðast hvar á landinu í dag og á morgun. Austlæg eða breytileg vindátt verður ríkjandi. Vindhraði á bilinu 3 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum. Smáskúrir á stöku stað en léttskýjað á Norðurlandi eystra. Seint á morgun þykknar svo upp með lítilsháttar súld austan- og norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 14 stig og svalast við austurströndina. Rólegasta veður verður á landinu í dag og á morgun. RÚV / Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn með flesta sveitarstjórnarmenn og Miðflokkur bætir við sig Seinustu tölur í sveitarstjórnarkosningunum bárust laust fyrir klukkan fimm í nótt. Óhætt er að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé sá stærsti á sveitarstjórnarstiginu eftir kosningarnar. Miðflokkurinn bætti við sig talsverðu fylgi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fjölmenni í miðborginni skemmti sér nokkuð friðsamlega Markús Þ. Þórhallsson Fjölmenni var í miðborg Reykjavíkur í nótt og að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var skemmtanahald friðsamlegt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Peningakassa var stolið úr verslun í miðborginni og rúður brotnar í öðru húsi til að komast inn. Ekkert bendir til að nokkuð hafi verið tekið þaðan. Maður var handtekinn fyrir innbrot í heimahús miðsvæðis í borginni og tveir menn sem slógust í Hafnarfirði voru handteknir fyrir líkamsárás. Þar í bæ hlupu lögreglumenn uppi réttindalausan ökumann sem reyndi að flýja á sprettinum eftir að för hans var stöðvuð og í Neðra-Breiðholti var bílstjóri handtekinn grunaður um ölvunarvunar- og vímuefnaakstur. Hann var einnig réttindalaus. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fyrsta val að halda áfram að vinna saman Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Múlaþingi með rúmlega 30% fylgi og Framsóknarflokkurinn er með 24,2%. Meirihlutinn heldur því og segja oddvitarnir viðræður um meirihlutamyndun hefjast þegar í stað. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „ Nóttin er ekki ung hún er eiginlega bara frekar gömul“ Erfitt er að gera sér grein fyrir því hvernig samsetning meirihlutans verður í borginni, segja stjórnmálafræðinemar sem fylgjast grannt með nýjustu fregnum í nótt. Margt komi á óvart í niðurstöðum víða um land. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Úrslitin vonbrigði en bæta við fólki víða um land Forseti Ungs jafnaðarfólks segir jákvætt að flokkurinn bæti við sig fólki í bæjarstjórnum víða um land. Hann segir úrslitin í Reykjavík og sumum nágrannasveitarfélögum vera vonbrigði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hörgársveit Sjálfstæðisflokkurinn fagnar víðar en í borginni Sjálfstæðisflokkurinn er að fagna víðar en í borginni, Ólöf Rún Erlendsdóttir leit við í kosningavöku þeirra í Hörgarsveit, þar ná þeir inn tveimur fulltrúm í fyrsta framboði í sveitarfélaginu ásamt G-lista sem hefur verið stærsti flokkurinn þar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Mér líst ekkert á blikuna“ Silja Sóley Birgisdóttir verður borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins miðað við nýjustu tölur úr Reykjavík. Henni líst ekki á hægri sveifluna sem sést víða en segist sjá tækifæri til meirihlutamyndunar á vinstri vængnum í Reykjavík. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Ég er náttúrulega brjáluð“ Líf Magneudóttir segir samvinnu Vinstrisins í kosningunum vera Vísir að því að félagshyggju- og umhverfisfólk taki höndum saman á vinstri vængnum. Tölur úr Reykjavík séu vonbrigði. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Róbert í Viðreisn mælist inni í borginni Róbert Ragnarsson segir sitt erindi í Reykjavík vera að taka til í rekstrinum og bæta þjónustu við borgarbúa. Hann mælist inni samkvæmt nýjustu tölum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Vinstra fólk er tilbúið til þess að vinna saman“ „Í upphafi ársins var Vinstrið ekki einu sinni til,“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir þegar hún ávarpaði kosningavöku Vinstrisins. „Sjáið hvar við erum núna.“ Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skrautlegur kjörseðill í Reykjavík Einn kjósandi í Reykjavík skilaði inn kjörseðli með mynd af þjófi í að því er virðist mótmælaskyni. Kjörseðla með teikningum og krafsi og þá sem útfylltir eru á ófullnægjandi hátt verður að senda í úrskurð þar sem gildi þeirra er metið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Mig grunaði að kvöldið yrði gott“ Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins voru himinlifandi yfir þeim niðurstöðum sem liggja fyrir í sveitarstjórnarkosningunum í kvöld. Formaður Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá betri niðurstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sonur Ara Edwald les aldrei kommentakerfið Sonur oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurborg segir hann rétta manninn í borgarstjórn. Ánægjulegt hafi verið að vera aðstandandi í kosningabaráttu, þó álagið sé mikið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Það verða engar breytingar án Miðflokksins“ Kristín Waage telur ákall eftir hægri sinnaðri borgarstjórn. Hún situr í 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík og mælist inni í nýjustu tölum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Bestu niðurstöður í 16 ár“ Hildur Björnsdóttir ávarpaði kosningavöku Sjálfstæðisflokksins við mikinn fögnuð eftir að fyrstu tölur úr Reykjavík voru birtar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Auðvitað ætluðum við okkur meira“ Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sauðburður á kosninganótt í Fljótsdal: „Það er enginn friður“ Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí Kjartani Magnússyni og Helga Áss Grétarssyni líður vel í Miðflokknum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kjörkassarnir streyma inn í ÍR-heimilið „Sérfræðingar í að meðhöndla pappír“ taka aftur og aftur þátt í talningu atkvæða í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddviti Framsóknar í Ísafjarðarbæ: „Þetta eru ótrúlegar tölur“ Oddviti Framsóknarflokksins á Ísafirði segir fyrstu tölur framar vonum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Stemningin skiptir mestu máli“ Hópur ungra manna sem röltir kosningavaka á milli í nótt segja einkenni góðrar kosningavöku vera góðar veitingar og gott fólk. Stemningin skipti mestu máli. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Kannski er minn tími kominn“ „Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla nú að gera það hér,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Samfylkingin missir helminginn af fylgi sínu, samkvæmt fyrstu tölum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkurinn mæti sterkur og sameinaður til leiks Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir greinilegt að það verði hægri sveifla í þessum kosningum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Teningnum hefur verið kastað“ Varaformaður Miðflokksins segist vera spenntur að heyra hvað þjóðin hefur að segja. Fjölmennt er á kosningavöku Miðflokksins á Hótel Borg. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Ágúst Þór syngur Við Reykjavíkurtjörn Ágúst Þór Brynjarsson flutti viðeigandi lag í Ráðhúsinu við Reykjavíkurtjörn þegar kosningavakan var að komast á skrið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ásdís „stolt og meyr“ yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45% atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. 16. maí 2026 kl. 21:23INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkur fékk níu menn í Reykjavík Úrslit liggja fyrir í öllum sveitarfélögum landsins, stórum sem smáum. Óhætt er að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé sá stærsti á sveitarstjórnarstiginu eftir kosningarnar. Miðflokkurinn bætti við sig talsverðu fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk langmest fylgi í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Lokatölur voru birtar rétt fyrir klukkan fjögur. Meirihlutinn í Reykjavík er kolfallinn. Fylgi Samfylkingarinnar er það lægsta sem flokkurinn hefur fengið í Reykjavík frá stofnun flokksins. Sjálfstæðismenn náðu hreinum meirihluta í Kópavogi. Flokkurinn fær sex menn kjörna í bæjarstjórn. Framsókn bætir miklu við sig í Hafnarfirði og meirihlutinn heldur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk rúmlega 39 prósent í Reykjanesbæ og fær fimm bæjarfulltrúa. Í sjö sveitarfélögum er óbundin kosning, þar sem allir kjörgengir íbúar eru í framboði, og sjálfkjörið er í fjórum. Listakosning er í fimmtíu sveitarfélögum þar sem 3.156 frambjóðendur gefa kost á sér á 178 listum. Kjörsókn hefur víðast hvar verið betri en í síðustu kosningum. Seinustu tölur í sveitarstjórnarkosningunum bárust laust fyrir klukkan fimm í nótt. Skemmtanahald var nokkuð friðsamlegt í höfuðborginni. SAMANTEKT 16. maí 2026 kl. 20:35INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi Notast er við rafræna kjörskrá í kosningum í Flóahreppi en það er eina sveitarfélag landsins þar sem slík kosning fer fram. Formaður landskjörnar segir rafræna kosningu vera framtíðina þar sem kjörskráin uppfærist í rauntíma og allt á stafrænu formi. 16. maí 2026 kl. 20:33INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Falsað Xanax í umferð inniheldur sterkt dýralækningalyf Falsað Xanax, sem er í dreifingu hér á landi, inniheldur efni sem er tvö hundruð sinnum sterkara en lyf sem notað er til að svæfa dýr. Yfirlæknir á geðsviði segir dauðsföll vegna óha