Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Afgerandi niðurstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Read Full Article →

Niðurstöður í öllum sveitarfélögum lágu fyrir nú í morgunsárið. Óhætt er að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið byr undir báða vængi víðast hvar en flokkurinn er stærstur í átta stærstu sveitarfélögum landsins. Flokkurinn er langstærstur í Reykjavík, þar sem hann er með níu borgarfulltrúa en næst á eftir kemur Samfylkingin með fimm borgarfulltrúa. Í Kópavogi er flokkurinn einnig lang stærstur, með sex fulltrúa og getur þar með myndað hreinan meirihluta, en Samfylkingin er með tvo fulltrúa. Þá er flokkurinn með hreinan meirihluta í Garðabæ, með átta fulltrúa af ellefu, og í Árborg, með sex fulltrúa af ellefu. Niðurstöður kosninganna í átta stærstu sveitarfélögum landsins má finna hér fyrir neðan. Í Reykjavík fékk Sjálfstæðisflokkurinn 32,5% atkvæða og 9 borgarfulltrúa, Samfylkingin 17,7% og 5, Miðflokkurinn 12,4% og 3, Viðreisn 10,3% og 2, Vinstri græn 9,2% og 2, Framsóknarflokkurinn 6,7% og 1 og Sósíalistaflokkurinn 4,0% og 1. Í Kópavogi fékk Sjálfstæðisflokkurinn 45,7% atkvæða og 6 bæjarfulltrúa, Samfylkingin 18,3% og 2, Framsóknarflokkurinn 11,9% og 1, Viðreisn 11,3% og 1 og Miðflokkurinn 10,1% og 1. Í Hafnarfirði fékk Sjálfstæðisflokkurinn 27,7% atkvæða og 3 bæjarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn 24,3% og 3, Samfylkingin 17,8% og 2, Viðreisn 14,3% og 2 og Miðflokkurinn 11,4% og 1. Í Reykjanesbæ fékk Sjálfstæðisflokkurinn 39,2% atkvæða og 5 bæjarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn 26,1% og 3, Samfylkingin 18,3% og 2 og Miðflokkurinn 11,2% og 1. Í Garðabæ fékk Sjálfstæðisflokkurinn 58,0% atkvæða og 8 bæjarfulltrúa, Samfylkingin 11,5% og 1, Framsóknarflokkurinn 8,9% og 1 og Garðabæjarlistinn 8,6% og 1. Á Akureyri fékk Sjálfstæðisflokkurinn 19,4% atkvæða og 2 bæjarfulltrúa, Samfylkingin 16,7% og 2, Framsóknarflokkurinn 15,1% og 2, L-listinn 19,3% og 2, Miðflokkurinn 8,1% og 1, Vinstri græn 7,9% og 1 og Á-listinn 7,5% og 1. Í Mosfellsbæ fékk Sjálfstæðisflokkurinn 42,2% atkvæða og 5 bæjarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn 20,8% og 2, Samfylkingin 10,9% og 1, Viðreisn 10,1% og 1, L-listinn 8,5% og 1 og Miðflokkurinn 7,4% og 1. Í Árborg fékk Sjálfstæðisflokkurinn 52,8% atkvæða og 6 bæjarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn 20,8% og 2, Samfylkingin 18,8% og 2 og Viðreisn 7,6% og 1.

Share this article