Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna fyrir áramót er til rannsóknar hjá bæði Europol og Interpol. Hakkarar komust yfir viðkvæm gögn um sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. Árásin var gerð í desember þar sem tölvuhakkarar brutust inn á netþjóna og komust þannig inn í kerfi Grundarheimilanna. Samkvæmt upplýsingum frá forstjóra Grundar komust hakkararnir yfir gögn sem ná mörg ár aftur í tímann og varða tugi þúsunda manna. „Það er ljóst að gögnum var lekið,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis. „Þetta eru gögn um sjúklinga, aðstandendur og jafnvel starfsfólk.“ Af hvaða stærðargráðu var þessi árás? „Árásin er þannig að hún truflar alla starfsemi Grundar og málið er enn í rannsókn,“ segir Anton. „En hún er af stórum skala að því leytinu til að hún truflar starfsemi heils fyrirtækis.“ Tölvuhakkarar sem réðust inn í kerfi Grundarheimilanna komust yfir upplýsingar um tugþúsundir manna. Málið er meðal annars til rannsóknar hjá Europol og Interpol. Syndis fer fyrir rannsókninni en bæði Europol og Interpol koma að henni, sem og netöryggissveitin Cert-IS, Persónuvernd og embætti landlæknis. Ekki er vitað hverjir stóðu að árásinni. Hafið þið einhverja hugmynd um hvað þeir ætluðu sér? „Ég hugsa að þetta sé eins og í flestum þeim árásum sem við höfum séð að undanförnu á Íslandi, að þetta er drifið áfram af peningum og því að krefjast lausnargjalds yfir gögnum eða kerfum. En það er yfirleitt gert í tveimur stigum þannig að öll kerfi eru tekin yfir og þau dulkóðuð, þannig að starfsemin er stöðvuð. Og svo í skrefi tvö er hótað að leka gögnum en þetta var stöðvað snemma í ferlinu.“ Og engin krafa um lausnargjald hefur komið fram, sem Anton segir meðal annars skýrast af skjótum viðbrögðum. „Við bregðumst mjög hratt við að stöðva árásina og bregðumst mjög hratt við því að setja upp öflugar varnir til þess að hamla því að nokkuð annað geti gerst í framtíðinni.“ Fólk hefur verið beðið um að vera á varðbergi gagnvart mögulegri misnotkun af hálfu tölvuþrjótanna. Hefur það gerst áður að árás hafi verið gerð á heilbrigðiskerfi á Íslandi, og að viðkvæmum upplýsingum sé stolið þaðan? „Sennilega ekki að kjarnastarfsemin sé heilbrigðisþjónusta við fólk, nei. Ekki svona sem ég man eftir.“
A cyberattack targeting the Grundarheimilin nursing homes in Iceland involved unauthorized access to servers