Innlent | mbl | 17.5.2026 | 15:35 Sér fyrir sér meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks Pétur telur afstöðu flokkanna til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins kunna að ráða úrslitum um það hvaða flokkar skipi meirihluta. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Þreifingar hafnar á Akureyri „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Alsæll með niðurstöðuna » Fleiri tengdar fréttir Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, telur líklegast að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn muni skipa meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur til næstu fjögurra ára. Þreifingar um meirihlutasamstarf segir hann ekki hafnar enn, en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur sagst munu ræða við oddvita allra flokka áður en formlegar viðræður hefjist. „Það er augljóst að hún mun tala við Viðreisn og Framsókn, og svo Miðflokkinn,“ segir Pétur í samtali við mbl.is, en þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans var hann nýgenginn út úr viðtali á Sprengisandi með Hildi og Ara Edwald, oddvita Miðflokksins. „Hún hefur tvo möguleika sem henni finnst eðlilegir og þó að það sé möguleiki á því að mynda stóran meirihluta með Samfylkingunni hefur það ekki farið neitt áfram málefnalega.“ Afstöðu flokkanna til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins telur hann kunna að ráða úrslitum um það hvor af raunhæfari valkostum Hildar til meirihlutamyndunar verði fyrir valinu, enda séu Viðreisn og Framsóknarflokkurinn hallari undir sáttmálann, sem hafi verið eitt stærsta málið í kosningabaráttunni, en Sjálfstæðisflokkurinn. Frétt af mbl.is „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Frétt af mbl.is Pétur: „Mjög svekktur“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vann stóran kosningasigur. mbl.is/Eyþór Samgöngusáttmálinn verði rifinn í tætlur Þrátt fyrir að meirihluti með Sjálfstæðisflokknum sé að sögn Péturs eini möguleiki Samfylkingarinnar á því að sitja í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur segist hann ekki sjá það sem raunhæfan kost. „Það er ýmislegt sem kemur í veg fyrir það; það er þessi grunnhugmyndafræði sem er ólík en svo er það sýnin hjá þeim, til dæmis að vilja stokka upp samgöngusáttmálann og búa bara til fleiri nefndir, meiri tafir og meiri umferð,“ segir hann. Hann segist hafa töluverðar áhyggjur af þeirri stefnu, enda sé ljóst að ef Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta með Miðflokknum yrði óljóst um afdrif samgöngusáttmálans í höndum þeirrar borgarstjórnar. „Ef þau mynda meirihluta, sem er líklegt þar sem þau hafa sagt að það sé lítill málefnalegur munur á þessum flokkum, er ljóst að samgöngusáttmálinn verður rifinn í tætlur.“ Frétt af mbl.is Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Flókið að mynda meirihluta standi Viðreisn og Framsókn í lappirnar Hann segir það munu verða flókið fyrir Hildi að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsókn vegna mismunandi afstöðu flokkanna til samgöngusáttmálans. „Viðreisn hefur talað fyrir því að halda áfram með samgöngusáttmálann, og það var Einar Þorsteinsson sem skrifaði undir endurskoðaðan samgöngusáttmála fyrir 18 mánuðum síðan svo það væri mjög skrýtið ef hann færi að stokka hann upp núna,“ segir hann. „Þannig að það verður dálítið flókið fyrir Hildi að mynda meirihluta með aðilum sem vilja standa í lappirnar og standa við gerða samninga, sem Ari og Hildur vilja ekki.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Þreifingar hafnar á Akureyri „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Alsæll með niðurstöðuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brynjar þakkar Kristrúnu, Össuri og fleirum Sér fyrir sér meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks Beint: Brugðist við kosningunum „Það er sorglegt að leyfa markinu að standa“ Gylfi skoraði frá miðju er Víkingur tyllti sér á toppinn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Lítill tími gefist fyrir þreifingar Forsætisráðherra tókst ekki að fella meirihlutann Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Nýjast á mbl.is » Brynjar þakkar Kristrúnu, Össuri og fleirum Sér fyrir sér meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks Beint: Brugðist við kosningunum „Það er sorglegt að leyfa markinu að standa“ Gylfi skoraði frá miðju er Víkingur tyllti sér á toppinn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lítill tími gefist fyrir þreifingar Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í borginni „Að sjálfsögðu langar mig í stjórn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið