Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rúmlega þúsund manns strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar

Read Full Article →

Nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur var útstrikað 1161 sinni af S-lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurborgar . Heiða skipaði annað sæti á lista flokksins. Nafn Brynjars Níelssonar, frambjóðanda D-lista Sjálfstæðisflokks, var útstrikað næstoftast út eða alls 364 sinnum. Innsláttarvilla sem hefur engin áhrif Í tilkynningu yfirstjórnar segir sömuleiðis að við yfirferð hafi komið í ljós misræmi milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða. Samkvæmt Evu Bryndísi Helgadóttur, formanni yfirkjörstjórnar, var um að ræða heiðarlega innsláttarvillu í talningarskjal, villan hafi engin áhrif á lokatölur. Í upplesnum tölum á kjörfundi var sagt að M-listi Miðflokks hefði hlotið 8912 atkvæði en í raun voru atkvæðin 7912. Heildarfjöldi atkvæða væri því 70996 en ekki 71996 eins og upphaflega hafði komið fram. Eva segir að gott hafi verið að finna villuna strax í fyrstu yfirferð, rétt skuli vera rétt.

Share this article