- What: Ebola outbreak spreads to Uganda
- Impact: International health organizations monitor spread
Ebólufaraldurinn sem upp er kominn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur nú náð til nágrannaríkisins Úganda. Rachel Rukwati var klædd í sóttvarnarbúning áður en hún fór inn á sóttvarnastöð fyrir ebóla-sjúklinga árið 2019.EPA / HUGH KINSELLA CUNNINGHAM Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint þennan faraldur sem alþjóðlega lýðheilsuvá. Vel á þriðja hundrað smit hafa komið upp og um 80 manns eru talin hafa látist af völdum veirunnar, sem er af sérlega banvænum Bundibugyo-stofni. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að flytja fámennan hóp ríkisborga brott frá Kongó. Hópnum verður haldið í sóttkví þar sem talið er að hann hafi komist í snertingu við fólk smitað af ebólu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast að útbreiðslan sé meiri en skráð tilvik gefi vísbendingar um.