- What: Interpol is investigating a cyberattack on the Grund nursing home that occurred in December.
- Impact: Sensitive patient, family, and staff information was accessed by the attackers.
Innlent | mbl | 14.2.2026 | 20:50 Interpol rannsakar árásina á Grund Grund varð fyrir netárás í desember. mbl.is/Árni Sæberg Árás tölvuþrjóta á netþjóna elliheimilisins Grundar í desembermánuði var umfangsmikil en skjót viðbrögð komu í veg fyrir að afleiðingar hennar hefðu mikil áhrif á starfsemi heimilanna. Þetta segir Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, í samtali við mbl.is. Tölvuþrjótarnir komust yfir viðkvæmar upplýsingar um sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk heimilanna en ekki er vitað hver stóð að baki árásinni. Frétt af mbl.is Þrjótar komust yfir heilsufarsupplýsingar á Grund Algengt að Interpol og Europol taki þátt „Þetta var töluvert mikið magn af gögnum þó að árásin sjálf hafi ekki verið jafn árangursrík og í mörgum öðrum tilfellum þar sem tekist hefur að taka heilu fyrirtækin í gíslingu í lengri tíma og gera þau óstarfhæf. Það var ekki raunin í þessu tilfelli,“ segir Anton og bætir við að það sé skjótum viðbrögðum að þakka að ekki fór verr. Rannsóknin á árásinni, sem leidd er af Syndis, er umfangsmikil og koma margir aðilar að henni. Meðal þeirra aðila sem koma að rannsókninni eru Interpol, Europol, netöryggissveitin Cert-IS, Persónuvernd og embætti landlæknis. „Það er nokkuð algengt. Það er ágætis samtal á milli allra aðila í heiminum þegar kemur að svona atriðum. Það er alltaf verið að reyna greina hvaða hópar geta staðið á bakvið þetta svo það sé hægt að elta þau uppi. Það eru helst hópar eins og Interpol og Europol sem á endanum geta slökkt á netglæpahópum sem yfirleitt standa að baki svona árásum,“ segir Anton aðspurður hvort algengt sé að Interpol og Europol taki þátt í slíkum rannsóknum hérlendis. Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis mbl.is/Eggert Tilgangurinn að krefjast lausnargjalds Tilgangur árásarinnar virðist hafa verið sá sami og í flestum slíkum árásum hérlendis: að reyna að fá greitt lausnargjald svo gögnunum sé ekki lekið. „Það hefur verið tilgangurinn. Ég held þetta sé það sem kallað er tækifærisárás. Það er verið að reyna brjótast inn alls staðar allan sólarhringinn, alla daga. Það bendir ekkert til þess að starfsemi Grundar hafi haft eitthvað með þetta að gera,“ segir Anton. Fær rúmar 45 milljónir í vasann Selfyssingurinn lék mjög vel Interpol rannsakar árásina á Grund Liverpool - Brighton, staðan er 1:0 Breikkandi gjá í brennideplinum Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Kjósa um sameiningu í mars Legurými staðið til boða í mánuði Hlutur þolenda verði réttur með bótum Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Enginn veit hvað gerist næst Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Fangaverðir liggja ekki undir grun 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Fær rúmar 45 milljónir í vasann Selfyssingurinn lék mjög vel Interpol rannsakar árásina á Grund Liverpool - Brighton, staðan er 1:0 Breikkandi gjá í brennideplinum Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Langar enn að eignast Grænland Vandræðagangur bótafrumvarps Legurými staðið til boða í mánuði Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Enginn veit hvað gerist næst Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Fangaverðir liggja ekki undir grun 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð