Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gagnrýndi ríkisstjórnina og Miðflokkinn í lokaræðunni

Read Full Article →

Mikil spenna er á flokksþingi Framsóknarflokksins í aðdraganda formannskjörs á morgun. Sigurður Ingi Jóhannsson flutti lokaræðu sína eftir áratug í formennsku. Flokksþingið hófst í morgun og hápunkturinn í dag var lokaræða Sigurðar Inga. „Kæru vinir. Ég er ekki hættur í pólitík, en ég segi takk,“ sagði Sigurður Ingi. Formannskjörið á morgun verður sögulegt því sigurvegarinn verður fyrsta konan í 109 ára sögu flokksins til að verða kjörin formaður Framsóknarflokksins. Sigurður Ingi sagðist ganga stoltur frá borði og að nú standi flokkurinn á krossgötum. Sigurður Ingi Jóhannsson gagnrýndi bæði ríkisstjórnina og Miðflokkinn í lokaræðu sinni sem formaður Framsóknarflokksins. Það ræðst á morgun hvort Lilja Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen tekur við keflinu. „Umburðarlyndur, frjálslyndur miðjuflokkur sem sækir fram á eigin gildum eða flokkur sem ætlar að elta popúlistana, flæmast undan hávaðanum vegna þess að við höfum ekki þor, ekki kjark til að svara eða standa á okkar skoðunum þó svo að þær eigi ekki upp á pallborðið í dægurþrasi öfganna.“ Þótt Sigurður Ingi hafi ekki nefnt Miðflokkinn á nafn vafðist það ekki fyrir neinum að þessum orðum var beint í þá áttina. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, birti færslu á Facebook í kjölfar ummæla Sigurðar Inga í dag. „Fyrir kurteisissakir ætla ég að láta vera að bregðast við sérkennilegri (og síbreytilegri) sjálfsréttlætingu fráfarandi formanns Framsóknarflokksins þar til eftir flokksþing þeirra. En ef ég ætti að veita vinum mínum í þeim flokki einhver vinsamleg ráð gæti ég þó lagt til að framsóknarmenn samþykki ekki drög að stefnu flokksins óbreytt,“ sagði Sigmundur Davíð. Sigurður Ingi gagnrýndi líka efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og galt varhug við Evrópuleiðangri ríkisstjórnarinnar. „Skynsamlegast væri ef Samfylkingin stæði við eitt, bara eitt, kosningaloforð sitt. Það er að segja að aðildarumsókn að ESB verði ekki á dagskrá á þessu kjörtímabili.“ Eftirmaður Sigurðar Inga verður kjörinn á morgun. Ingibjörg Isaksen og Lilja Dögg Alfreðsdóttir hafa háð harða baráttu og ef marka má veðbanka stefnir í öruggan sigur þeirrar síðarnefndu.

Share this article