Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafsteinsson hafa selt rúmlega helmingshlut sinn í Höfða Lodge, lúxushóteli sem á að opna á Þengilhöfða við Grenivík í haust. Þeir voru í forystu fyrir verkefninu allt frá því það var kynnt síðla árs 2020 þar til þeir seldu sinn hlut í byrjun þessa mánaðar. Kaupandinn er Ilidor S.a.r.l. sem hefur átt tæplega helmingshlut á móti þeim. Markmiðin með byggingu og rekstri hótelsins voru háleit. Það á að vera fimm stjörnu lúxushótel fyrir efnað fólk allsstaðar að úr heiminum. „Hérna er að rísa bara eitt flottasta hótel á landinu, ef ekki bara það flottasta, hérna á Grenivík," sagði Björgvin í viðtali við RÚV í mars 2021. Í fyrrasumar var byggingin orðin tveimur árum á eftir áætlun og þá sagði Björgvin að verkið hefði reynst flóknara en talið var og kostnaður farið fram úr áætlun. Stefnt er að því að opna hótelið í haust, fjórum árum seinna en upphaflega var stefnt að. Björgvin og Jóhann seldu sinn hlut í því en fengu á móti eignarhlut í Viking Heliskiing og Scanic Guide sem þeir áttu með Höfða Lodge en eignast nú að fullu.