Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Forsetinn sakar Rússa um árásir á sendiráð Asera í Kyiv

  • What: The President of Azerbaijan accuses Russia of deliberately attacking the Azerbaijani embassy in Kyiv.
  • Impact: The attacks have increased tensions between Russia and Azerbaijan.
Read Full Article →

Forseti Aserbaísjan, Ilham Aliyev, sakar Rússa um að hafa vísvitandi ráðist á sendiráð landsins í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Aliyev lét þessi orð falla í viðtali við sjálfstæða fjölmiðilinn Ukrainska Pravda, á öryggisráðstefnunni í München í gær. Aliyev segir að þrjár árásir hafi verið gerðar á orkuinnviði Asera í Úkraínu og einnig hafi verið þrjár árásir á sendiráð Aserbaísjan í Úkraínu. Ríkisstjórnin taldi að fyrsta árásin hefði verðið óviljandi og lét rússnesk stjórnvöld fá nákvæmar upplýsingar um staðsetningu allra eininga sem tilheyra sendiráði Aserbaísjan, ræðisskrifstofu og menningarsetri. Þrátt fyrir það fylgdu fleiri árásir í kjölfarið. Stjórnvöld í Aserbaísjan hafa fram til þessa ekki tekið afstöðu í innrás Rússa í Úkraínu, en ummæli forsetans varpa ljósi á aukna togstreitu í samskiptum Rússa og Asera. Aliyev og Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti funduðu á öryggisráðstefnunni í München í gær. Í kjölfarið tilkynnti forsetaskrifstofa Aserbaísjan að ríkisstjórnin væri tilbúin að auka samstarf við Úkraínu. Forsetarnir ræddu um þróun á tvíhliða samskiptum og verkefnum í orkugeiranum. Fréttavefurinn Kyiv Independent greinir svo frá.

Share this article