- What: Advania partners with Keystrike for network security
- Impact: Businesses gain enhanced security solutions
Advania og netöryggisfyrirtækið Keystrike hafa skrifað undir samstarfssamning sem gerir Advania kleift að bjóða viðskiptavinum sínum Keystrike sem hluta af netöryggisframboði félagsins. Með samstarfinu fá viðskiptavinir Advania aðgang að netöryggislausn sem styður við aðrar öryggislausnir fyrirtækja og stofnana. „Keystrike er öflug vara og fellur vel inn í það vöruframboð sem Advania vill bjóða viðskiptavinum til að hámarka netöryggisþol þeirra. Lausnin er til þess fallin að auka vernd gegn innbrotum og gagnaþjófnaði og er sérstaklega sterk fyrir viðskiptavini sem reka sitt eigið þjónustuumhverfi í gagnaverum,“ segir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggis- og gagnaþróunar hjá Advania. Sjá einnig Myndir: Morgunverðarfundur Keystrike Lausn Keystrike byggir á þeirri staðreynd að yfirtaka hakkara á tölvum starfsfólks og fyrirtækja er alltaf gerð í gegnum fjartengingar og að það eina sem hakkarar geta ekki gert er að gefa skipun á lyklaborð og mús í raunheimum. Hugbúnaður Keystrike tryggir í rauntíma stöðuga auðkenningu skipana í gegnum fjartengingar, þannig að tengingin sjálf er örugg eftir að hefðbundin tví- eða margþátta auðkenning á sér stað. „Við erum afar ánægð með að vera komin í samstarf við Advania og að geta boðið viðskiptavinum félagsins aðgang að Keystrike sem hluta af öflugri netöryggisþjónustu þeirra,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike.