- What: Phishing scam using Icelandic voice AI
- Impact: People in Iceland targeted by fake Microsoft calls
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Engar hópuppsagnir tilkynntar í apríl Ragnhildur Helgadóttir Engar hópuppsagnir voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í apríl síðastliðnum. Þetta segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Vinnumálastofnun hafa borist sjö tilkynningar um hópuppsagnir það sem af er ári. Í mars misstu 90 vinnuna í þremur hópuppsögnum. Þá bárust tilkynningar um tvær hópuppsagnir í febrúar þar sem 69 var sagt upp störfum. Í janúar voru hópuppsagnir tvær og var 84 sagt upp. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Vara við fjársvikum þar sem talgervill talar íslensku Ragnhildur Helgadóttir Lögreglan vekur athygli á fjársvikum þar sem hringt er í fólk úr íslenskum símanúmerum og íslenskumælandi talgervill er notaður við samskiptin. „Á línunni er aðili sem segist vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í. Í framhaldinu er viðkomandi leiddur í gegnum ferli við uppsetningu búnaðar í tölvu sinni sem gerir brotamönnum kleift að komast yfir fjármuni hans,“ segir í tilkynningu. Svona svik eru ekki ný en það eru nýmæli að íslenska sé notuð. Telji fólk sig hafa orðið fyrir slíkum svikum er því bent á að hafa samband við viðskiptabanka sinn og tilkynna til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Milljarða útgreiðslur Sóltúns: Ráðherra telur að takmarka skuli greiðslur út úr hjúkrunarheimilum Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að mikilvægt hafi verið að gera nýjan samning við hjúkrunarheimilið Sóltún í fyrra. Hún er spurð út í 3,2 milljarða útgreiðslur úr Sóltúni og til eigenda hjúkrunarheimilisins. Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðmundur Árni stígur til hliðar – „Ég er langt í frá kalinn á hjarta“ Guðmundur Árni Stefánsson ætlar ekki að taka sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og hyggst víkja sem varaformaður Samfylkingarinnar. Samfylkingin missti töluvert fylgi milli kosninga og Guðmundur segir mikilvægt að taka ábyrgð. Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Hvalfirðingar hafna sameiningarhugmyndum við önnur sveitarfélög Ásrún Aldís Hreinsdóttir Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardag var gerð viðhorfskönnun meðal íbúa í Hvalfjarðarsveit um sameiningarmál. Spurt var: Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög? Alls greiddu 467 íbúar atkvæði, af þeim voru 332 alfarið andvígir sameiningaráformum. Meirihluti þeirra 69 íbúa sem voru hlynntir sameiningaráformum litu helst til Akraneskaupstaðar. Niðurstöðurnar voru birtar á vef sveitarfélagsins í dag. RÚV Fyrir 43 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Grænlandsstjórn fundar með útsendara Bandaríkjanna: „Engar breytingar á afstöðu til Grænlands“ Formaður landstjórnar Grænlands og utanríkisráðherra landsins funduðu í dag með sérstökum fulltrúa Bandaríkjanna í málefnum Grænlands. Fundurinn var á kurteislegum nótum en ekkert bendir til breyttrar afstöðu Bandaríkjanna. Fyrir 51 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist FLOTT með 20 og eitthvað Plata vikunnar er svolítið spes að þessu sinni. Hún heitir 20 og eitthvað og inniheldur lögin úr samnefndri sjónvarpsseríu sem FLOTT semur ásamt þeim Arnóri og Óla sem skrifa þættina. Fyrir 54 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Sumarveðrið komið en sundlaugin lokuð Blíðskaparveður er víðast hvar á landinu og spár gera ráð fyrir áframhaldandi sólskini í vikunni. Hitinn gæti farið í 16 stig á suðvesturhorninu á miðvikudag og allt að 18 stig á Norðurlandi um helgina. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Stóra njósnamálið í Middlesbrough Southampton er í vondum málum eftir að þjálfari á þess vegum sást mynda æfingar Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik á dögunum. Elvar Geir Magnússon á Fotbolti.net hefur fylgst með þesssu æsispennandi máli og var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelsmenn stöðva enn eitt skip aðgerðarsinna á leið til Gaza Ísraelsmenn hafa í enn eitt skiptið stöðvað skip aðgerðarsinna sem ætluðu til Gaza með hjálpargögn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta snýst um að stimpla málið“ Diljá Mist Einarsdóttir fulltrúi minnihlutans í utanríkismálanefnd segir meirihlutann vera í spreng við að koma þjóðaratkvæðagreiðslunni í atkvæðagreiðslu á Alþingi. Hún telur að umræðan muni yfirtaka Alþingi. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Sindri upp í Úrvalsdeild – Við erum tilbúnir Sögulegur leikur fór fram í Ice Lagoon-höllinni á fimmtudaginn þegar Sindri frá Höfn lagði Breiðablik í oddaleik úrslitaeinvígis í fyrstu deild karla. Þorgrímur Tjörvi Halldórsson, formaður körfuknattleiksdeildar Sindra, var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Taka kalda vatnið af Kópavogi annað kvöld Brynjólfur Þór Guðmundsson Nýr vatnstankur verður tengdur við veitukerfi Kópavogsbæjar annað kvöld. Það hefur áhrif á aðgengi bæjarbúa að köldu vatni. Lokað verður fyrir kalda vatnið klukkan tíu annað kvöld meðan unnið er að tengingu nýja tanksins. Viðbúið er að það taki um fimm klukkustundir. Sundlaugum verður lokað 21:45. Kópavogsbær hvetur fólk til að skúfa fyrir krana með köldu vatni áður en það er tekið af og segir að skynsamlegt geti verið að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum. Einnig gæti verið ráðlegt að setja vatn í fötur fyrir klósett svo hægt sé að sturta niður. Hætt er við að fólk brenni sig ef það skrúfar frá krana því aðeins kemur heitt vatn. Kársnes í Kópavogi. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Aðstæður til björgunar eins góðar og þær gerast Tveir fiskibátar lentu í vanda, annar þeirra á Breiðafirði í gærkvöld og hinn á Húnaflóa snemma í morgun. Skipstjóri á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi sagði aðgerðir hafa gengið vel og að kjöraðstæður hafi verið á sjó. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Ákærð fyrir að ganga um Héðinsfjarðargöng Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært fólk fyrir að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng í júlí í fyrra. Slíkt er með öllu bannað í göngunum. Önnur göngin eru 3,9 kílómetra löng en hin 7,1 kílómetra löng. Lögreglan birti ákæru og fyrirkall í Lögbirtingablaðinu á föstudag. Konan er skráð með lögheimili í Reykjavík en karlinn er með óþekkt heimilisfang. Ekki kemur fram í ákærunni í hvorum göngunum fólkið var né hversu langt inn í göngin það var komið. Héðinsfjarðargöng. Mynd úr safni. vegagerdin.is / RÚV Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Loftslagskrísan neyðarástand í lýðheilsu: „Þessi ógn hefur ekki farið neitt“ Samevrópsk nefnd um loftslag og heilsu vill að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsi yfir neyðarástandi í lýðheilsu vegna loftslagsbreytinga. Formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, segir ógnina ekki hafa farið neitt þótt athyglinni sé beint annað. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Maldívur Lík fimm ítalskra kafara fundin við Maldívur Lík fjögurra ítalskra kafara sem leitað hefur verið eftir köfunarslys við Maldívur eru nú fundin. Alls létust fimm í slysinu en fyrsta líkið fannst skömmu eftir það. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Táningur handtekinn eftir ofsaakstur og árekstur Ungur ökumaður ók á ofsahraða frá Suðurnesjum og vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið áður en för hans stöðvaðist þegar hann keyrði aftan á bíl. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Breyta verklagi vegna mikilla tafa á Suðurlandsvegi Vegagerðin hefur breytt verklagi vegna mikilla tafa á umferð vegna framkvæmda á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kveikti í sér eftir að lögregla beitti rafbyssu Lögreglan á Suðurnesjum beitti rafbyssu við afskipti af manni í Reykjanesbæ í morgun. Maðurinn sem lögregla ætlaði að yfirbuga hellti á sig bensíni og kveikti í. Hann er töluvert brenndur og var fluttur á Landspítalann. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Sund Áratugur frá sögulegu afreki Hrafnhildar Í dag, 18. maí, eru tíu ár liðin frá því Hrafnhildur Lúthersdóttir varð fyrsti ófatlaði Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Evrópumótinu í sundi í 50 metra laug. Á þessum degi árið 2016 vann Hrafnhildur silfur í 100 metra bringusundi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búast má við töfum á Suðurlandsvegi við Hólmsá Ásrún Aldís Hreinsdóttir Gera má ráð fyrir miklum töfum á umferð á Suðurlandsvegi í dag. Framkvæmdir hófust klukkan níu í morgun á veginum við Hólmsá og vinnan heldur áfram til klukkan átta í kvöld. Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Verið er að fræsa og malbika veginn við Hólmsá og umferð verður stýrt fram hjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar. RÚV / RÚV - Guðmundur Bergkvist Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Afgreiða tillögu um þjóðaratkvæði úr nefnd og vilja breyta spurningunni Meirihluti utanríkismálanefndar leggur til að spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verði breytt og setur fram samningsmarkmið. Minnihluti nefndarinnar mótmælir að tillagan sé afgreidd úr nefnd. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Hantaveiruskipið komið til Rotterdam – nýtt smit greindist um helgina Hondius, skemmtiferðaskipið þar sem hantaveirusmit breiddist út fyrr í mánuðinum, kom til hafnar í Rotterdam í morgun. Farþegi af skipinu greindist með smit í gær. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðmundur Árni hættir í pólitík Meirihlutaviðræður þokast áfram víðast hvar á landinu. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræðurnar. Hildur hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra óskar Sjálfstæðisflokknum góðs gengis á sveitarstjórnarstiginu og segir Samfylkinguna þurfa að byggja aftur upp traust í borginni. Guðmundur Árni Stefánss