- What: Eleven people were reportedly killed in attacks in Gaza.
- Impact: Civilians in Gaza are affected by ongoing conflict.
Almannavarnir á Gaza segja ellefu hið minnsta hafa verið drepna í þremur árásum Ísraela í morgun. Fimm voru drepnir og nokkrir særðust þegar sprengja frá ísraelskri herþotu sprakk á tjaldi í flóttamannabúðum í Jabalia í norðurhluta Gaza, segja almannavarnir. Fimm til viðbótar fórust í árás á Khan Younis og nokkrir særðust. Þá fórst einn í sprenguárás Ísraela á Gazaborg. AFP-fréttastofan fékk staðfest hjá tveimur sjúkrahúsum að lík minnst sjö einstaklinga hefðu verið flutt þangað í morgun. Ísraelsher sagði árásirnar viðbrögð við vopnahlésbrotum Hamas-liða sem hefðu farið yfir gulu línuna nærri landamærunum að Ísrael. Heilbrigðisráðuneyti Gaza segir að 601 Palestínumaður hið minnsta hafi verið drepinn frá því vopnahlé tók gildi í október. Ísraelar segja að fjórir hermenn sínir hið minnsta hafi verið drepnir á sama tíma.