Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Júlía sló met sem hafði staðið í 30 ár

Read Full Article →

Júlía Kristín Jóhannesdóttir sló 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnarsdóttur í 60 metra grindarhlaupi kvenna í gær. Vísir greinir frá málinu en Júlía hljóp á 8,25 sekúndum. Hún bætti þar með met Guðrúnar sem hljóp á 8,31 sekúndu árið 1996. Júlía sló þar einnig skólamet Rice University háskólans. Júlía Kristín er tvítug og keppti fyrir hönd Breiðabliks áður en hún hélt í nám til Bandaríkjanna. Júlía varð í 5. sæti á Tyson Invitational-mótinu. „Sjúklega ánægð að hafa náð þessu markmiði. Gaman að slá tvær flugur í einu höggi og spennt fyrir því sem er fram undan 💙“ sagði Júlía á Instagram.

Share this article