Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vindhraði setur skipum skorður

  • What: Faxaflóhafnir, the port authority for Akranes, Grundartangi, and Reykjavik, has set wind condition restrictions for ship traffic.
  • Impact: These restrictions aim to ensure safe ship traffic and operations within the harbors.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.2.2026 | 15:25 Vindhraði setur skipum skorður Norwegian Prima Hér er skipið að sigla inn Viðeyjarsund. Þetta er á sömu slóðum og atvikið örlagaríka varð 2023. mbl.is/sisi Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða sinna á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík hafa Faxaflóhafnir sett takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða. Takmarkanir þessar eru þær fyrstu sem gefnar eru út opinberlega af höfn á Íslandi og byggjast á ítarlegri greiningu á vindgögnum, hermirannsóknum auk þess sem stuðst var við þekkingu og reynslu hafnsögumanna Faxaflóahafna á hafnarsvæðunum, að því er fram kemur á heimasíðu Faxaflóahafna. Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður leiddi þessa vinnu. Tryggja öryggi skipa Veðurviðmiðin, takmarkanirnar vegna veður- og vindskilyrða, eru sett með það að markmiði að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða Faxaflóhafna. Í kjölfar alvarlegs atviks á Viðeyjarsundi í maí 2023, þegar minnstu munaði að hið risastóra skemmtiferðaskip Norwegian Prima strandaði í suðvestan hvassviðri, ákváðu Faxaflóahafnir að ráðast í gerð viðmiða sem hægt væri að styðjast við og myndu styrkja hafnsögumenn og skipstjóra skipa við ákvarðanatöku í krefjandi aðstæðum. Þegar Norwegian Prima var að leggja frá bryggju í Sundahöfn misstu stjórnendur skipsins tímabundið stjórn á því. Rak skipið yfir bauju á sundinu og mesta mildi þykir að hún hafi ekki farið í skrúfur þess. Þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum. Var Norwegian Prima aðeins 10 metra frá grynningunum við vesturenda Viðeyjar þegar minnstu munaði. Var metið svo að aðeins hefði munað 40 sentimetrum að skipið tæki niðri á grynningunum. Fleiri atvik hafa komið upp, þar sem litlu hefur munað að illa færi. Ákveðið var að fá fyrirtækið Marine Training Center Hamburg (MTC) til að leiða vinnu við gerð skýrslu til að styðjast við við útgáfu á veðurtakmörkunum, en fyrirtækið hefur reynslu af sambærilegri vinnu fyrir hafnir, m.a. fyrir höfnina í Hamborg í Þýskalandi. Hafnir Faxaflóahafna voru settar upp í siglingahermum MTC þannig að herma mætti sambærileg skip og leggjast að bryggjum Faxaflóahafna í þeim veðuraðstæðum sem geta orðið og var í því samhengi stuðst við gögn úr veðurstöðvum Faxaflóahafna fjögur ár aftur í tímann. Samtals voru gerðar 77 hermanir á hafnaraðstæðunum og til verksins voru fengnir hafnsögumenn Faxaflóahafna ásamt yfirhafnsögumanni, en þeir sáu um stjórntök skipa í siglingaherminum ásamt því að gefa dráttarbátum skipanir um aðstoð. Leyfilegur vindhraði Í hinum nýju reglum kemur fram að hámarks leyfilegur vindhraði er sem hér segir: Skemmtiferðaskip: Umferð er óheimil fari meðalvindhraði yfir 14 metra á sekúndu (m/s) eða vindhviður yfir 20 m/s. Önnur skip (t.d. gámaskip, tankskip, flutningaskip): Umferð er óheimil fari meðalvindhraði yfir 18 m/s eða vindhviður yfir 25 m/s. Vakthafandi hafnsögumenn meta vindskilyrði með hliðsjón af tiltækum veðurupplýsingum. Undanþágu er hægt að veita fyrir skip sem búin eru háþróuðum stýri- og stjórnkerfum. Vakthafandi hafnsögumenn geta ákveðið með hliðsjón af aðstæðum að fleiri en einn dráttarbátur sé nauðsynlegur við stjórn skips. Hafnsögumenn Faxaflóahafna eru á vaktinni allan sólarhringinn, alla daga ársins. Höfnin hefur yfir að ráða tveimur öflugum dráttarbátum, Magna og Haka. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Íslendingaliðið stóð í Feyenoord Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Vindhraði setur skipum skorður Leeds áfram eftir vítaspyrnukeppni Sló 30 ára Íslandsmet Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Kjartan kominn heim frá Suður-Afríku Rof við Landeyjahöfn Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Beint: Formannskjör hjá Framsókn Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Ástarlífið er í rúst! Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Erfiðast að læra íslensku Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Íslendingaliðið stóð í Feyenoord Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Vindhraði setur skipum skorður Leeds áfram eftir vítaspyrnukeppni Sló 30 ára Íslandsmet Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Rof við Landeyjahöfn Langar enn að eignast Grænland Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Beint: Formannskjör hjá Framsókn Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Ástarlífið er í rúst! Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Erfiðast að læra íslensku Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri

Share this article