- What: Former Norwegian Prime Minister Thorbjorn Jagland is under investigation for corruption due to his ties with Jeffrey Epstein.
- Impact: Jagland has been granted suspect status by Norwegian authorities after documents revealed his intention to visit Epstein after his first conviction.
Thorbjorn Jagland, forsætisráðherra Noregs árin 1996 til 1997 og fyrrverandi forseti Evrópuráðsins, er grunaður um spillingu og hefur hlotið réttarstöðu sakbornings. Tengsl hans við fjárfestinn Jeffrey Epstein urðu ljós fyrir fáeinum vikum. Í Epstein-skjölunum fundust gögn sem sýndu að Jagland ætlaði að heimsækja Epstein á heimili hans eftir að Epstein sat fyrst inni fyrir að kaupa vændi af ólögráða stúlku. Jagland naut friðhelgi sem forseti Evrópuráðsins, en eftir að ráðið afnam þá friðhelgi gat norska spillingarlögreglan Økokrim veitt honum réttarstöðu sakbornings. EPA / HAYOUNG JEON Áður sagði að Jagland hefði verið ákærður. Það hefur verið leiðrétt.