Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lilja Dögg fyrsta konan til að vera kosin formaður Framsóknarflokksins

Read Full Article →

Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Sigur Lilju Daggar í dag var afgerandi. 607 greiddu atkvæði og af þeim fékk hún 352. Ingibjörg fékk 254 atkvæði og einn atkvæðaseðill var auður. Þetta þýðir að Lilja Dögg fékk 58 prósent atkvæða, sextán prósentustigum meira en Ingibjörg sem fékk 42 prósent atkvæða. Það er mun meiri munur en þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, sem nú lét af formennsku, felldi Sigmund Davíð Gunnlaugsson í formannskjöri síðla árs 2016. Lilja Dögg Alfreðsdóttir hlaut 58 prósent atkvæða í formannskjöri í Framsóknarflokknum. Hún ætlar að leggja áherslu á skýra efnahagsstefnu. Sigurður Ingi Jóhannsson, forveri hennar, segir mikilvægt að nýr formaður hafi fengið afgerandi kosningu. Lilja Dögg hefur boðað Framsóknaráratug. Hún hyggst leggja áherslu á skýra efnahagsstefnu í formennskuhlutverki sínu. Fyrsta verkefnið verður þó að gera vel í sveitarstjórnarkosningum. Lilja Dögg hefur trú á að Framsóknarflokkurinn komi sameinaður út úr þinginu. „Hann verður að gera það vegna þess að það er í okkar grunnhugsjón, sem er samvinnuhugsunin, sem gengur út á það að ef við vinnum saman þá náum við meiri árangri. Það getur vel verið að stundum reyni það á en við erum 110 ára flokkur og við hljótum að vera að gera eitthvað rétt. Verkefnin fram undan eru stór en ég er full bjartsýni.“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir hlaut 58 prósent atkvæða í formannskjöri í Framsóknarflokknum. Hún ætlar að leggja áherslu á skýra efnahagsstefnu. Sigurður Ingi Jóhannsson, forveri hennar, segir mikilvægt að nýr formaður hafi fengið afgerandi kosningu. Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur sína stöðu sterkari en áður þrátt fyrir tap. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún verði áfram þingflokksformaður. Sigurður Ingi Jóhannsson var varaformaður Framsóknarflokksins í þrjú ár og formaður í tæp tíu ár. Hann segir niðurstöðuna ekki hafa komið á óvart og telur mikilvægt fyrir nýjan formann að hafa fengið afgerandi kosningu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir hlaut 58 prósent atkvæða í formannskjöri í Framsóknarflokknum. Hún ætlar að leggja áherslu á skýra efnahagsstefnu. Sigurður Ingi Jóhannsson, forveri hennar, segir mikilvægt að nýr formaður hafi fengið afgerandi kosningu.

Share this article