Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjölmenn mótmæli víða um heim gegn klerkastjórninni í Íran

  • What: Large-scale protests against the Iranian government took place worldwide.
  • Impact: The protests highlight international concern over the Iranian government's crackdown on dissent.
Read Full Article →

Hundruð þúsunda manna víða um heim mótmæltu stjórnvöldum í Íran um helgina. Klerkastjórnin hefur tekið á mótmælendum í Íran af mikilli hörku og þúsundir hafa verið drepnar. Mótmælabylgja sem hófst í Íran í lok desember teygir anga sína nú um allan heim. Mótmæli kaupsýslumanna í Íran stigmögnuðust í allsherjar mótmæli gegn stjórnvöldum á skömmum tíma. Írönsk yfirvöld hafa beitt mótmælendur mikilli hörku og fjöldi fólks hefur látið lífið. Klerkastjórnin segir minnst 3.000 vera látna en mannréttindasamtök áætla að allt að 7.000 liggi í valnum. 250.000 söfnuðust saman í München í Þýskalandi um helgina til að sýna samstöðu með almenningi í Íran, 350.000 mótmæltu í kanadísku borginni Toronto og fjölmenn mótmæli voru einnig haldin í Lundúnum, Los Angeles, Tel Aviv í Ísrael og Lissabon í Portúgal. Reza Pahlavi, sonur fyrrum keisara Írans, ávarpaði fjöldasamkomu í München og kallaði eftir því að heimsbyggðin léti í sér heyra fyrir írönsku þjóðina. Pahlavi hefur verið í útlegð frá því að klerkastjórnin steypti föður hans af stóli 1979. Hann býr í Bandaríkjunum. Hann hefur sagt brýnt að fella klerkastjórnina en kveðst sjálfur ekki sækjast eftir valdataumunum í Íran ef af því verður.

Share this article