Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Höfum verið of kurteis

  • What: The Foreign Minister of Iceland discussed the need for stricter measures against Russia's so-called shadow fleet in the Baltic Sea, which transports Russian oil under various flags.
  • Impact: The shadow fleet poses risks to energy security and the environment in the Baltic Sea region.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.2.2026 | 19:54 Höfum verið of kurteis Sikorski er hér Þorgerði á hægri hönd en hún mun taka við af honum í forustu Eystrasaltsráðsins í sumar. mbl.is/kbl Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði á fundi um Rússland og öryggi í Eystrasaltinu í morgun að taka þyrfti hinn svokallaða skuggaflota Rússa, sem siglir undir fánum ýmissa ríkja með rússneska olíu úr Eystrasaltinu um heiminn, fastari tökum og í þeim efnum hefði Evrópusambandið sýnt allt of mikla kurteisi. Fundurinn var haldinn á vegum Eystrasaltsráðsins á öryggisráðstefnunni í München. Þar var talað um skemmdarverk á köplum og leiðslum í Eystrasaltinu, skemmdarverk á landi og hernað í netheimum. Hinn svokallaði skuggafloti, sem Radek Sikorski, varaforsætisráðherra Póllands og utanríkisráðherra, kallaði dalla á fundinum, siglir undir hentifánum og skipta skipin oft um fána og heiti eftir hentisemi. Frétt af mbl.is Evrópa þarf að verða sjálfstæðari Lítið aðhafst til að stöðva skipin Skuggaflotinn er mjög mikilvægur Rússum til að komast fram hjá refsiaðgerðum sem á þá hafa verið settar vegna Úkraínustríðsins og á stóran þátt í að gera þeim kleift að fjármagna stríðsrekstur sinn sem bráðum hefur staðið í fjögur ár. Á fundinum var talað um hversu lítið væri aðhafst til að stöðva siglingar þessara skipa, sem oft væru illa á sig komin, væru beinlínis hættuleg öðrum skipum auk þess sem þeim fylgdi mikil mengunarhætta. Oft sigldu skip úr flotanum meira að segja undir fánum landa án þess að vera skráð þar. Á fundinum var tekið dæmi um slíkt skip, en þó hefði sigling þess ekki verið stöðvuð. Ísland tilbúið að grípa til allra ráða Þorgerður sagði mikilvægt að tala sameiginlega við fánaríkin. Hún sagði að Ísland hefði tekið upp allar refsiaðgerðir gegn skuggaflotanum, sem voru um tuttugu talsins, og þær næstu væru í undirbúningi af hálfu Evrópusambandsins. „Mér finnst ekki bara sem stjórnmálamanni heldur einstaklingi að í þessum efnum þurfum við að vera uppbyggilegri, einbeittari og ákveðnari,” sagði Þorgerður Katrín. „Við höfum verið of kurteis. Almennt höfum við verið of kurteis. Það býr mikið í Evrópu ... en stundum skortir einfaldlega sjálfstraust þegar kemur að skuggaflotanum og það á við um fleira, efnahagsmál, öryggismál og fleira. Við á Íslandi erum tilbúin að grípa til allra ráða til að stoppa skuggaflotann.” Ísland tekur við forystu í sumar Þorgerður sagði að vegur ráðsins færi nú vaxandi. „Mér hefur í gegnum árin þótt mikilvægi Eystrasaltsráðsins fara minnkandi en eftir þessar breytingar í heimsmálum og aukna ógn við Evrópu er þetta orðinn mikilvægari vettvangur,” sagði hún eftir fundinn í morgun. „Ég finn það líka á þessu ári og það er líka mikilvægt að Þýskaland og Pólland eru að stíga mjög sterkt inn í NB8-hópinn með okkur. Það er gríðarlega dýrmætt og hefur meðal leitt af sér að Þýskaland er í auknum mæli að horfa til Norður-Atlantshafsins.” Frétt af mbl.is Breikkandi gjá í brennideplinum Þorgerður nefndi tvíhliða yfirlýsingu sem hún og Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, undirrituðu á Íslandi í október um aukið samstarf í öryggis- og varnarmálum og bætti við: „Það sýnir að pólitískt samstarf leiðir til víðari linsu og meiri ábyrgðar og mér finnst það mikilvægt fyrir okkur og Evrópu.“ Ísland tekur í sumar við forystu í Eystrasaltsráðinu af Pólverjum. Tekur Þorgerður þar við af Sikorski. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Höfum verið of kurteis Akureyringar lögðu Íslandsmeistarana Rangers færist nær Tómasi og félögum Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Frestað hjá Willum vegna snjókomu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Erfiðast að læra íslensku Lamaðist af hryllingi við uppgötvunina Vandræðagangur bótafrumvarps Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Höfum verið of kurteis Akureyringar lögðu Íslandsmeistarana Rangers færist nær Tómasi og félögum Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Frestað hjá Willum vegna snjókomu Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Erfiðast að læra íslensku Langar enn að eignast Grænland Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina

Share this article