- What: Israeli security minister faces criticism for video showing harsh treatment of prisoners
- Impact: International reactions and domestic political debate
Þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, birti myndskeið á samfélagsmiðlinum X í gær sem sýndi tugi aðgerðarsinna beitta harðræði. Fólkið var neytt til liggja á hnjánum með hendur bundnar og höfuð niður í gólfi. Myndskeiðið var birt með textanum „Velkomin til Ísrael“og á einum stað heyrðist þjóðsöngur Ísraels í bakgrunni. Myndskeiðið vakti hörð viðbrögð víða um heim og fjölmargir þjóðarleiðtogar fordæmdu myndskeiðið og meðferðina á aðgerðarsinnunum. Þá gagnrýndi forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, þjóðaröryggisráðherrann og sagði að meðferðin á aðgerðarsinnum væri ekki í takt við gildi og hefðir Ísraels og stjórnvöld myndu sleppa aðgerðarsinnunum eins fljótt og auðið væri. Frönsk og belgísk stjórnvöld hafa kallað ísraelska sendiherra til fundar vegna málsins. Mark Carney forsætisráðherra Kanada sagði meðferðina á aðgerðarsinnunum viðurstyggilega og utanríkisráðherra Írlands Helen McEntee sagði að myndskeiðið sýndi að brotið væri gegn virðingu og reisn aðgerðarsinna og hún krefst tafarlausrar lausnar þeirra. Breski utanríkisráðherrann Yvetta Cooper sagði að breska ríkisstjórnin hefði krafist skýringa frá ísraelskum stjórnvöldum. Þá hafa stjórnvöld í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Spáni, Póllandi og Tyrklandi einnig fordæmt atvikið og myndskeiðið sem Itamar Ben Gvir birti. Ísraelar hafa áður stöðvað sams konar neyðaraðstoð, síðast í apríl.