- What: Israeli forces intercepted a flotilla of activists heading to Gaza
- Impact: Activists were detained and deported from Israel
Alls var 422 aðgerðarsinnum flogið frá Suður-Ísrael til Ankara í þremur flugvélum, en nokkrum aðgerðarsinnum var flogið beint til heimalanda sinna.AP / Emrah Gurel Ísraelsk stjórnvöld segja að allir erlendu aðgerðasinnarnir sem teknir voru höndum hafi allir verið sendir úr landi. Aðgerðarsinnarnir voru í skipum Global Sumud Flotilla sem Ísraelsher stöðvaði á mánudag á alþjóðlegu hafsvæði fyrir utan Kýpur. Skipin voru á leiðinni til Gaza með hjálpargögn. Þjóðaröryggisráðherra Ísraels birti myndskeið á samfélagsmiðlinum X í fyrradag sem sýndi tugi aðgerðarsinna beitta harðræði. Stjórnvöld víða um heim fordæmdu meðferðina sem þar var sýnd.