- What: BP board chairman Albert Manifold resigned over alleged poor management style
- Impact: BP board restructured after complaints about his leadership
Stjórn breska olíurisans BP tilkynnti í morgun um að ákveðið að víkja Albert Manifold úr starfi stjórnarformanns félagsins eftir að hafa borist ábendingar um slælega stjórnunarhætti. Hann hafði aðeins gegnt stjórnarformennsku hjá BP í átta mánuði. Manifolder sakaður um að hafa átt það til að tala með hvössum hætti til stjórnenda, jafnvel öskra, samkvæmt heimildarmanni The Telegraph . Hann er sagður hafa átt erfitt með að stjórna skapi sínu. Auk þess hafa verið viðraðar áhyggjur af ítökum hans þegar kemur að ákvörðunum um daglegan rekstur fyrirtækisins, samkvæmt Financial Times . Í kauphallartilkynningu BP segir einn stjórnarmanna BP að ábendingar um stjórnarhætti Manifold hafi komið stjórninni á óvart. Að sama skapi sagði hún að stjórnin hafi talið stjórnunartilburði óásættanlega og hafi því ákveðið að grípa til aðgerða. Hlutabréfaverð BP hefur lækkað um 4,4% það sem af er degi. Albert Manifold hafði gegnt stjórnarformennsku hjá BP í átta mánuði.