- What: Modern cars collect driver data
- Impact: Car manufacturers gather personal information
Bílar | Morgunblaðið | 26.5.2026 | 23:00 Er bíllinn þinn að njósna um þig? Nýir og nýlegir bílar eru með búnað sem safnar upplýsingum um aksturslag og athæfi ökumanna. mbl.is/Eggert Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Ef þú heldur að sunnudagsrúnturinn sé þinn tími og aðeins þinn skaltu hugsa þig tvisvar um. Nútímabílar eru tölvur á hjólum og stórfyrirtæki nota þá til að soga til sín viðkvæmar upplýsingar um líf þitt og græða meiri peninga. Og það lítur út fyrir að ástandið sé að fara að versna til muna. Í umfjöllun á vef breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að bílar safni ótrúlegu magni gagna um ökumenn. Þeir fylgjast með þyngd þeirra, svipbrigðum og auðvitað hvert þeir fara. BBC segir að þetta komi raunar allt fram í persónuverndarstefnum bílafyrirtækjanna. Það er hins vegar varla fyrsta verk fólks að kafa ofan í þær þegar það festir kaup á nýjum bíl. Upplýsingarnar sem bílafyrirtækin safna geta innihaldið nákvæmar staðsetningarupplýsingar um alla staði sem þú ferð á, hver er með þér í bílnum, hvað er í útvarpinu og hvort þú spennir öryggisbeltið, keyrir of hratt eða hemlar of harkalega. Sumir geta safnað upplýsingum sem þú átt kannski ekki von á, eins og þyngd þinni, aldri, kynþætti og svipbrigðum. Borar þú í nefið? Sumir bílar eru með myndavélar að innan sem beint er að ökumannssætinu og flestir eru með nettengingu sem getur sent þessi gögn frá sér á meðan þú „gönnar“ Reykjanesbrautina eða ferð í ísbíltur austur fyrir fjall. Tilkynning sem þessi mætir mörgum bíleigendum þegar þeir setja í gang. Stóra spurningin er svo hvað er gert við þessar upplýsingar og svarið mun varla gleðja lesendur. Í umfjöllun BBC kemur fram að meðal stærstu viðskiptavina bílagagna eru tryggingafélög og þau nota þau til að rukka suma hærra verð. Vert er að hafa í huga að Morgunblaðið hefur engar upplýsingar um að þetta tíðkist hjá íslenskum tryggingafélögum. Að öðru leyti segir BBC ómögulegt að vita hvert upplýsingar um þig rata. Sum bílafyrirtæki viðurkenna að þau selji gögnin þín, en þau þurfa ekki að taka fram hver kaupir þau. Safna brátt enn meiri gögnum Þó að bílafyrirtækin hafi stundað þessa iðju um nokkra hríð virðast fæstir neytendur hafa hugmynd um að þetta viðgangist. Nú er þá líklega rétti tímapunkturinn til að setja sig inn í málin því ný alríkislög í Bandaríkjunum eiga eftir að leiða til þess að bíllinn þinn geti brátt safnað enn meiri gögnum um þig. Bandarísk bílafyrirtæki þurfa að setja upp innrauðar lífkennismyndavélar og önnur kerfi til að skanna líkamstjáningu þína, fylgjast með augunum í þér eða öðrum þáttum í hegðun þinni til að greina hvort þú sért of drukkinn eða þreyttur til að aka. Þetta mun einnig opna fyrir alveg nýjan fjársjóð gagna um heilsu þína og venjur. Engar reglur takmarka hvað bílafyrirtækin geta gert við þessar upplýsingar. Þeir sem eiga nýja og nýlega bíla mega búast við því að hann safni gögnum um þá. Ráðgjafafyrirtækið McKinsey komst að því að 50% bíla á götunni árið 2021 voru með nettengingu og spáði því að talan myndi hækka í 95% fyrir árið 2030. Ef bíllinn þinn er tengdur við netið þarftu örugglega að hafa áhyggjur af persónuverndarmálum. En bílafyrirtæki geta líka njósnað þegar þú tengir símann þinn við upplýsinga- og afþreyingarkerfið, eða ef þú notar ákveðin forrit sem eru gerð fyrir akstur. Í greiningu frá Mozilla, framleiðanda Firefox-vafrans, frá 2023 voru persónuverndarstefnur 25 bílategunda skoðaðar. Engin þeirra stóðst persónuverndar- og öryggisstaðla sem Mozilla notar til að bera saman vörumerki. Mozilla sagði að bílar væru „versti vöruflokkurinn sem við höfum nokkru sinni skoðað með tilliti til persónuverndar“. Samkvæmt skýrslunni áskilja bílafyrirtæki sér rétt til að safna upplýsingum, þar á meðal nafni þínu, aldri, kynþætti, þyngd, fjárhagsupplýsingum, svipbrigðum, sálfræðilegum tilhneigingum og fleiru. Eitt fyrirtæki gengur meira að segja svo langt að gefa í skyn að það gæti jafnvel safnað upplýsingum um kynlíf þitt og almenna heilsu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Toyota blæs til sumarveislu Enginn hleðslukvíði og bara gleði Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Er bíllinn þinn að njósna um þig? BM Vallá kaupir fimm rafknúna Mercedes-Benz vörubíla Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Enginn hleðslukvíði og bara gleði Toyota blæs til sumarveislu Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Hekla kveður Laugaveginn með sumarsýningu Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Nettur en þéttur og býsna glúrinn Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Enginn hleðslukvíði og bara gleði Toyota blæs til sumarveislu Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Hekla kveður Laugaveginn með sumarsýningu Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Nettur en þéttur og býsna glúrinn Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Mest lesið Í gær Í vikunni Toyota blæs til sumarveislu Enginn hleðslukvíði og bara gleði Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Er bíllinn þinn að njósna um þig? BM Vallá kaupir fimm rafknúna Mercedes-Benz vörubíla Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Enginn hleðslukvíði og bara gleði Toyota blæs til sumarveislu Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Hekla kveður Laugaveginn með sumarsýningu Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Nettur en þéttur og býsna glúrinn Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Enginn hleðslukvíði og bara gleði Toyota blæs til sumarveislu Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Askja frumsýnir Kia EV2 Hekla kveður Laugaveginn með sumarsýningu Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Nettur en þéttur og býsna glúrinn Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz