Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óresteia og Lína langsokkur sigursælastar á Grímuverðlaununum

  • What: Theater awards ceremony
  • Impact: Arts industry recognition
Read Full Article →

Uppskeruhátíð íslenskra sviðslista var í kvöld þegar Grímuverðlaunin voru afhent með pompi og prakt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Óresteia eftir Benedict Andrews og Lína langsokkur í leikstjórn Agnesar Wild tóku heim flest Grímuverðlaun á hátíðinni í kvöld. Þjóðleikhúsi setti báðar sýningarnar upp. Gríski harmleikurinn Óresteia eftir Benedict Andrews er bæði sýning og leikrit ársins 2026. Nína Dögg Filippusdóttir hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir túlkun sína og Elín Hansdóttir fyrir leikmynd ársins. Barnasýning ársins er Lína langsokkur og hlaut Agnes Wild verðlaun sem leikstjóri ársins. Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson hlutu saman verðlaun sem bestu leikarar í aukahlutverki og Eva Björg Harðardóttir var verðlaunuð fyrir búninga ársins. Óperan Sæmundur fróði sem sýnd er í Tjarnarbíói fór heim með tvenn verðlaun í kvöld fyrir tónlist og hljóðmynd ársins eftir Þórunni Guðmundsdóttur og Hrafnkel Orra Egilsson. Þá var Björk Níelsdóttir valin söngvari ársins. Berglind Alda Ástþórsdóttir er leikkona ársins í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Ófelíu í Hamlet í Borgarleikhúsinu og Árni Pétur Guðjónsson er leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Skammarþríhyrningnum, sem einnig var sett upp í Borgarleikhúsinu í samstarfi við Stertubendu. Sally Cowdin fór heim með tvenn verðlaun í kvöld. Annars vegar sem danshöfundur ársins í samstarfi við Anaïs Barthe, Alona Perepelytsia og dansara Ballet Axis fyrir Pointe of Axis, og hins vegar fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins fyrir Söngleikinn Kabarett í samstarfi við Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur. Dansari ársins er Hiroki Ichinose fyrir túlkun sína í Garðinum með Íslenska dansflokknum. Dansverkið Flækt hlýtur einnig verðlaun fyrir lýsingu ársins eftir Andreu Fàbregas Granes. Hvatningarverðlaun valnefndar hlaut barna- og ungmennastarf Borgarleikhússins sem nær meðal annars til fjölmenns leiklistarskóla, barnaþings og mikilvægs starfs með flóttabörnum og hinsegin ungmennum. Egill Andrason og Gréta Ómarsdóttir tóku á móti Grímuverðlaunum fyrir hönd Árna Péturs Guðjónssonar sem er leikari ársins í aðalhlutverki.

Share this article