Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Kona ákærð fyrir aðild að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki

  • What: Icelandic woman charged for involvement with terrorist group
  • Impact: Highlighting links to Islamic State
Read Full Article →

Áströlsk lögregluyfirvöld hafa kært ónafngreinda 34 ára gamla konu fyrir að hafa átt aðild að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki og fyrir að hafa lagt leið sína á þekkt átakasvæði. Konan kemur fyrir rétt í dag og gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangavist. Hundruð kvenna frá ríkjum Vesturlanda voru lokkaðar til Mið-Austurlanda snemma á öðrum áratug aldarinnar þegar hryðjuverkasamtökin höfðu sig hvað mest í frammi. Margar hverjar fylgdu eiginmönnum sínum sem gerðust vígamenn samtakanna. Hryðjuverkadeild áströlsku lögreglunnar segir það eiga við konuna sem fór til Sýrlands 2013 eða 2014 ásamt karlmanni sem nú er talinn fangi í Mið-Austurlöndum. Kúrdískar sveitir, sem áttu þátt í að ganga nánast milli bols og höfuðs á samtökunum, héldu konunni fanginni frá árinu 2019 uns hún sneri aftur til Ástralíu í september á síðasta ári. Vel á annan tug kvenna og barna hafa snúið aftur frá Mið-Austurlöndum til Ástralíu á liðnum vikum. Mál flestra eru til rannsóknar og mæðgur tvær eru sakaðar um að hafa haldið konu sem þræli í Sýrlandi. Örlög hinna svokölluðu ISIS-brúða hafa vakið talsverðar deilur í Ástralíu. Mannréttindanefnd ríkisins hefur hvatt stjórnvöld til að koma þeim konum heim sem enn eru í Mið-Austurlöndum á meðan aðrir segja þær hafa snúið baki við Ástralíu og beri að taka afleiðingunum.

Share this article