Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Um 1000 ICE-liðar hafa yfirgefið Minnesota

  • What: Hundreds of ICE officers have left Minnesota following operations in recent weeks.
  • Impact: The departure follows criticism of ICE's operations in Minneapolis, where officers fatally shot two civilians.
Read Full Article →

Um 1.000 ICE-liðar hjá tolla- og landamæraeftirliti Bandaríkjanna hafa nú þegar yfirgefið Minnesota eftir aðgerðir þar undanfarnar vikur. Tom Homan, sem kallaður hefur verið landamærakeisarinn af Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir að enn fleiri hundruð ICE-liðar muni fara frá ríkinu á næstu dögum. Þetta sagði Homan í viðtali í þættinum Face the Nation á CBS-sjónvarpsstöðinni í gær. Borið hefur á gagnrýni á það að ICE-liðar séu með grímur eða hylji andlit sín við störf. Homan sagðist ekki hrifinn af þessum grímum en sagði að ICE-liðar hyldu andlit sín til að verja sig fyrir hótunum og ofbeldi. Tolla- og landamæraeftirlt Bandaríkjanna hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir aðgerðir sínar í Minneapolis þar sem ICE-liðar skutu tvo almenna borgara til dauða fyrir skemmstu. Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa krafist þess að starfshættir ICE-liða verði endurskoðaðir. Demókratar vilja meðal annars að dómsúrskurð þurfi áður en innflytjendur eru handteknir. Homan sagði að alríkislög krefðust þess ekki og ef Bandaríkjaþing vildi koma á breytingum þurfi þingið að setja ný lög. Sem stendur starfi ICE innan ramma alríkislaga sem þingið hefur sett og forsetinn hefur undirritað.

Share this article